Fasteignaleitin
Opið hús:08. júlí kl 17:45-18:15
Skráð 2. júlí 2025
Deila eign
Deila

Írabakki 18

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
82.2 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
54.500.000 kr.
Fermetraverð
663.017 kr./m2
Fasteignamat
50.400.000 kr.
Brunabótamat
43.850.000 kr.
Mynd af Ragnar Kristján Guðmundsson
Ragnar Kristján Guðmundsson
Fasteignasali
Byggt 1970
Þvottahús
Garður
Útsýni
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2048184
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Gler endurnýjað að hluta
Þak
Upprunalegt
Svalir
2 stórar svalir
Upphitun
Ofnar
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
*Fasteignasali vekur athygli á að skortur er á brunaútgönguleiðum í rými í kjallara eignar (skráð samkv. faseignaryfirliti sem íbúðarherbergi í kjallara). Einnig er búið að fjarlæga sameiginlega sturtu- og salernisaðstöðu kjallara sem fyrrum eigendur hagnýttu. Núverandi eigandi hagnýtir herbergið sem geymslu.
*Tvö starfandi húsfélög eru í eigninni. Eitt húsfélag fyrir stigagang 18, og annað fyrir alla aðra stigaganganna (stóra húsfélagið). 
 
Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali hjá TORG fasteignasölu kynnir: Vel skipulögð 3ja til 4ra herbergja íbúð á 3. hæð (efstu hæð) að Írabakka 18. Útleiguherbergi í kjallara og tvennar stórar svalir. Eignin er skráð 82,2 fm. samkvæmt Þjóðskrá Íslands og skiptist í hol, rúmgóða stofu, borðstofu, eldhús, 2 svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, sérgeymslu og sérherbergi í kjallara sem hefur verið hagnýtt til útleigu. Sameiginlegt þvottaherbergi og hjólageymsla í sameign. Mjög stutt er í skóla, leikskóla og Mjóddina sem hýsir alla helstu þjónustu eins og verslanir, heilsugæslu og strætósamgöngur. Einnig er stutt í Elliðarárdalinn þar sem eru fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði. Búið er að setja upp sameiginlegar rafhleðslustöðvar á sameiginlegt bílaplan.
Frekari upplýsingar veitir Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali í S: 844-6516 eða ragnar@fstorg.is

NÁNARI LÝSING: 
Á stigapalli sameignar er skápur í sameign sem tilheyrir íbúðinni.
Hol/anddyri: Frá anddyri tekur við hol sem tengir saman flest rými íbúðarinnar. Harðparket er á gólfi.
Stofa/borðstofa: Stofa og borðstofa eru samliggjandi og bjartar með harðparketi á gólfi. Stórir gluggar birta upp stofurnar. Frá borðstofu er útgengt á stórar svalir sem snúa í átt að sameiginlegum garði.
Eldhús: Eldhúsið er með ljósri eldhúsinnréttingu, búið efri- og neðri skápum, bakaraofni með helluborði, háfi, tengi fyrir uppþvottavél og stæði fyrir kæliskáp. Flísar á milli efri- og neðri skápa. Rúmgóður borðkrókur er við glugga. Flísar á gólfi.
Svefnherbergi: Innan íbúðar eru tvö svefnherbergi með harðparketi á gólfum og innbyggðum fatahirslum. Frá hjónaherbergi er útgengt á mjög stórar svalir með fallegu útsýni.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Búið hvítri innréttingu með handlaug og speglaskápi. Salerni, sturtuklefi og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Sérgeymsla í kjallara sameignar skráð 5 fm.
Sameign: Innan sameignar er sameiginlegt þvottaherbergi ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Íbúðarherbergi í kjallara: Rúmgott herbergi er í kjallara sameignar skráð 12,8 fm. buið glugga með opnanlegu fagi. Herbergið er skráð á fasteignayfirliti sem íbúðarherbergi.

Um er að ræða mikið endurnýjaða fjölskyldueign á vinsælum stað í bökkunum í neðra Breiðholti. Grunnskóli, leikskólar og Mjóddin í göngufæri og stutt í Elliðarárdalinn þar sem eru fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði. 
Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali í S: 844-6516 eða ragnar@fstorg.is

Fáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína hér.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign (Athugið að gjaldskrár stofnana geta tekið breytingum og því neðangreint aðeins til viðmiðunar):
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Flúðasel 91
Skoða eignina Flúðasel 91
Flúðasel 91
109 Reykjavík
96.3 m2
Fjölbýlishús
32
549 þ.kr./m2
52.900.000 kr.
Skoða eignina Ferjubakki 8
Skoða eignina Ferjubakki 8
Ferjubakki 8
109 Reykjavík
77.1 m2
Fjölbýlishús
311
712 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Skoða eignina Hjaltabakki 8
3D Sýn
Skoða eignina Hjaltabakki 8
Hjaltabakki 8
109 Reykjavík
85.8 m2
Fjölbýlishús
312
640 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Skoða eignina Kóngsbakki 15
Skoða eignina Kóngsbakki 15
Kóngsbakki 15
109 Reykjavík
88.9 m2
Fjölbýlishús
413
618 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin