**** EIgnin er SELD með hefðbundnum fyrirvara ****
Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. og Trausti fasteignasala kynna í einkasölu fallega, bjarta og mikið endurnýjaða 4ra herbergja íbúð á 2. hæð í góðu, snyrtilegu fjölbýli ásamt stæði í bílageymslu í Seljahverfinu. Stutt í alla helstu þjónustu, leik- og grunnskóla, íþróttir og fallegar gönguleiðir.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign
Eignin er skráð samkvæmt HMS 128,1 fm og þar af er geymsla 6 fm og stæði í bílageymslu 31,7 fm.
Nánari lýsing:
Forstofa/hol er rúmgott með parket á gólfi og nýtist vel sem sjónvarpshol.
Stofa, borðstofa og
eldhús rýmist vel í góðu alrými sem er bjart með parket á gólfi. Frábært útsýni.
Eldhús er nýlegt (2021) með innb. uppþvottavél, viftu yfir helluborði, eyju með góðu borðplássi sem hægt er að sitja við.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með góðum skápum, parket á gólfi og útgengt á góðar suðursvalir.
Svefnherbergi I er rúmgott með skáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi II er rúmgott með skáp og parket á gólfi.
Baðherbergi er nýlegt (2020), mjög rúmgott með walk-in sturtu, upphengt salerni, handklæðaofn og gólfhita, góða innréttingu, tengi fyrir þvottavél og þurrkara og flísalagt í hólf og gólf.
Sérgeymsla íbúðar á geymslugangi í sameign í kjallara hússins.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign í kjallara hússins.
Sérstæði í snyrtilegri, lokaðri bílageymslu.
Annað:
-Hurðir í íbúð síðan 2019
-Baðherbergi endurnýjað 2020
-Eldhús endurnýjað 2021
-Stigagangur málaður og nýtt teppi síðan 2022, húsið málað og múrviðgert ásamt því sem skipt var um glugga.Nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is