Fasteignaleitin
Skráð 18. sept. 2026

Grundartún 13b

RaðhúsNorðurland/Hvammstangi-530
102.5 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
64.900.000 kr.
Fermetraverð
633.171 kr./m2
Fasteignamat
36.350.000 kr.
Mynd af Friðrik Halldór Brynjólfsson
Friðrik Halldór Brynjólfsson
Byggt 2024
Garður
Pallur
Á einni hæð
Fasteignanúmer
2531781
Landnúmer
211553
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Í lagi
Raflagnir
Í lagi
Frárennslislagnir
Í lagi
Gluggar / Gler
Í lagi
Þak
Í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei
Upphitun
Hitaveita
Domus fasteignasala kynnir Grundartún 13b á Hvammstanga – glæsilegt fjögurra herbergja raðhús á einni hæð með þremur svefnherbergjum, aukinni lofthæð og fallegum innréttingum.

Smelltu hér til að sjá kynningarmyndband um eignina


Eignin er skráð 102,5 m², byggð árið 2024, og stendur skammt frá sjó. Hér fara saman nútímalegt yfirbragð, hlýlegir litir og gott skipulag þar sem rými nýtast vel.  Aukin lofthæð og stórir gluggar setja sérstaklega fallegan svip á alrýmið, þar sem eldhús og borðstofa tengjast notalegri setustofu. Frá borðstofu er útgengt á verönd við bakhlið hússins.

Innréttingar eru frá Kvik, gólfefni og hurðir frá Birgisson og gólfhiti er í húsinu. Dúkaloft með innfelldri lýsingu og Plejd-ljósastýring fullkomna samræmt og stílhreint yfirbragð eignarinnar.

Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús og borðstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Jafnframt er rúmgott geymsluloft sem er aðgengilegt með stiga úr þvottahúsi. 

Helstu kostir eignarinnar:

-Raðhús á einni hæð, byggt árið 2024.
-Þrjú svefnherbergi.
-Aukin lofthæð og björt alrými.
-Kvik-innréttingar í húsinu.
-Eldhúseyja með spanhelluborði og innbyggðum gufugleypi.
-Eldhústæki keypt ný sumarið 2025.
-Gólfhiti og Plejd-ljósastýring.
-Flísalagt baðherbergi með sturtu
-Geymsluloft með aðgengi úr þvottahúsi.
-Útgengt á verönd frá borðstofu.

Nánari lýsing:

Forstofa: Björt og snyrtileg með flísum á gólfi og fallegum, rúmgóðum fataskáp í dökkum viðartóni. Gler er í útihurð og við hlið hennar sem hleypir dagsbirtu inn í rýmið. Rennihurð skilur forstofuna frá íbúðinni.

Stofa: Notaleg setustofa með góðu plássi fyrir sófa og sjónvarpsaðstöðu. Stofan tengist eldhúsi og borðstofu en veggur við eldhús afmarkar setuaðstöðuna á skemmtilegan hátt. Aukin lofthæð og samræmdir litir skapa fallega heild.

Eldhús og borðstofa: Bjart og aðlaðandi rými með stórum gluggum og útgengi á verönd. Eldhúsinnréttingin er frá Kvik, með ljósum skúffufrontum og dökkum viðartónum í háum skápum. Góð vinnuaðstaða er í eldhúsinu og stór eyja með aðstöðu fyrir barstóla. Í eyjunni er spanhelluborð með innbyggðum gufugleypi. Innbyggður bakaraofn og örbylgjuofn eru í vinnuhæð, auk innbyggðs ísskáps með frysti. Samkvæmt upplýsingum eigenda voru öll eldhústæki keypt ný sumarið 2025. Borðstofan er við gluggana og rúmar vel borðstofuborð.

Svefnherbergi: Þrjú björt svefnherbergi með samræmdum gólfefnum og fataskápum. Hjónaherbergið er við bakhlið hússins og hin tvö herbergin við framhlið. Herbergin nýtast vel sem barna-, gesta- eða vinnuherbergi eftir þörfum.

Baðherbergi: Sérlega smekklegt baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf með stórum flísum í hlýjum lit. Þar er rúmgóð sturta án þreps með glerskilrúmi, loftsturtu og innfelldri hillu. Falleg skúffuinnrétting er undir handlaug ásamt háum skáp og stórum kringlóttum spegli með lýsingu. Upphengt salerni og handklæðaofn. Hreinlætistæki, handklæðaofn og spegill eru frá Tengi.

Þvottahús og geymsluloft: Þvottahús með skápainnréttingu og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í turni. Úr þvottahúsi er stigi upp á geymsluloft sem nær yfir baðherbergið og veitir viðbótargeymslupláss.

Aðkoma og útisvæði: Malbikuð aðkoma og bílastæði eru við framhlið hússins. Við bakhlið er verönd með aðgengi frá borðstofu og grasflöt þar fyrir utan.

Viðbótarupplýsingar frá eigendum: Til eru rennihurðir fyrir fataskápa, hurðir og hillur í tækjaskáp í eldhúsi ásamt fronti fyrir innbyggða uppþvottavél.

Upplýsingar veita Friðrik Halldór Brynjólfsson löggiltur fasteignasali s 662-8034 fridrik@domus.is
eða Stefán Ólafsson hrl. löggiltur fasteignasali s 891-9425 sol@domus.is


Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Domus Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 71.920 kr.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
22/10/202533.750.000 kr.44.000.000 kr.102.5 m2429.268 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (68)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Seljaland 20
Skoða eignina Seljaland 20
Seljaland 20
800 Selfoss
88.2 m2
Raðhús
413
713 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Skoða eignina Úlfarsbraut 90
Efsta hæð
Úlfarsbraut 90 mynd 2.jpg
Skoða eignina Úlfarsbraut 90
Úlfarsbraut 90
113 Reykjavík
111.8 m2
Fjölbýlishús
413
818 þ.kr./m2
91.500.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg íbúð 204
Hleðslustöð
Opið hús:18. sept. kl 12:00-12:30
Laugaborg íbúð 204
105 Reykjavík
98.1 m2
Fjölbýlishús
312
1008 þ.kr./m2
98.900.000 kr.
Skoða eignina Austurberg 6
Bílskúr
Efsta hæð
Hleðslustöð
Skoða eignina Austurberg 6
Austurberg 6
111 Reykjavík
111.9 m2
Fjölbýlishús
414
616 þ.kr./m2
68.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin