Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir 2ja herbergja íbúð á jarðhæð að Keldulandi 1 í Fossvoginum í Reykjavík. Íbúðin snýr í suður, niður í dalinn og er útgengi út á skjólgóða viðarverönd (ca 28 m2) út frá stofu. Stutt í stofnæðar og göngu- og hjólastíga til að fara um hverfið og nágrenni. Fossvogsdalurinn býður upp á ýmsa útivist og afþreyingu, s.s. frispígolf, blak og leiksvæði. Þar eru einnig verslanir og veitingastaðir.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is Eignin skiptist í forstofu, stofu, herbergi, eldhús, baðherbergi og geymslu. Eignin er skráð hjá Þjóðskrá Íslands alls 58,3 m2.*VINSAMLEGA SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR UM EIGNINAHér getur þú nálgast söluyfirlit straxNánari lýsing eignar:Forstofa er inn af snyrtilegri sameign. Innan íbúðar er hvítur fataskápur fyrir yfirhafnir. Parket er á gólfi og flæðir það um öll rými íbúðar nema baðherbergi.
Stofa og eldhús eru í opnu rými. Fyrir utan suðurglugga er sérafnotareitur íbúðar.
Eldhús er með innréttingu á einum vegg, hvít og svört. Ofn, helluborð og vifta fyrir ofan. Á eyju er vaskur, stæði fyrir uppþvottavél, skúffur og skáp. Inn af eldhúsi er gott pláss fyrir eldhúsborð og stóla.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, hvítar flísar upp veggi og dökkar gólfflísar með gólfhita. Þreplaus sturta með gleri, innrétting undir handlaug, veggfestur speglaskápur og upphengt salerni.
Herbergi er vel rúmgott og hægt er að ganga úr því herbergi út á viðarverönd. Hvítir fataskápar dekka einn vegg í svefnherberginu.
Viðarverönd er u.þ.b. 28 m2. Afgirt með hliði til að komast út í garð. Fyrir utan er grasflötur og trjágróður. Pallurinn er skjólgóður og snýr til suðurs. Útiljósin eru með birtuskynjara.
Geymsla er sér í sameign á sömu hæð.
Þvottahús er í sameign á hæðinni.
Ath. að nýlega var skipt um glugga og svalahurðar í húsinu og eru myndirnar (bæði inni og úti) frá því áður en framkvæmdir hófust.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is
-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-