** Góð fjölskyldureign **
RE/MAX og Sigrún Matthea kynna: Björt og falleg fjölskyldueign á góðum stað í Garðabæ, mikil lofthæð, tvennar svalir og stæði í bílakjallara, Sjávargrund 10b, þaðan er stutt í leik og grunnskóla, ýmsa verslun og aðra þjónustu í miðbæ Garðabæjar bæði í Litlatúni og á Garðatorgi, sundlaugina í Ásgarði og íþróttastarf Stjörnunnar, skemmtilegar gönguleiðir og ýmsa aðra útivist.
Stærð eignar er 160,2 m2 íbúð + 17 m2 geymsla + 20,5 m2 bílastæði í bílageymslu samtals 197,7 m2
Eign er á tveimur hæðum og skiptist í 5 svefnherbergi, borðstofu, stofu, eldhús, 2 baðherbergi, tvennar svalir, og sérgeymsla í sameign, ásamt bílastæði í bílakjallara.
Þetta er klasahús og í miðju þess er sameiginlegur aflokaður garður. Rúmgóð og björt fjölskyldueign á góðum stað í Garðabæ, eign sem er vert að skoða. Upplýsingar veitir Sigrún Matthea í síma 695-3502
eða í netf: sms@remax.isSmelltu hér ef þú viltu fá sent söluyfirlit Skoðaðu eignina hér í 3D (þarf ekki sérstakt forrit í tölvuna)Nánari lýsing eignar:Forstofa / Hol: Fataskápur, flísar á gólfi.
Alrými sem er eldhús, borðstofa og stofa:
Eldhús: Fulninga innrétting gott skápa og vinnupláss, flísar á gólfi.
Borðstofa: Rúmgott rými, flísar á gólfi, hátt til lofts, þakgluggar. gengið út á svalir úr borðstofu.
Stofa: Bjart og rúmgott rými, hátt til lofts að hluta, eikar plankaparket á gólfi, gengið út á svalir.
Herbergi I: Fataskápar, eikar plankaparket á gólfi.
Herbergi II: Fataskápur, eikar plankaparket á gólfi.
Herbergi III: Fataskápur, eikar plankaparket á gólfi, nýtt í dag sem skrifstofa, var upprunalega hluti af alrými.
Baðherbergi I: Lítil innrétting, salerni, sturta, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, flísar á gólfi og veggjum.
Baðherbergi II: Lítil innrétting, salerni, baðkar, flísar á gólfi og veggjum.
Stigi upp á eftir hæð er frá Járnsmiðju Óðins. Sjónvarps eða setustofa: Velux gluggar í lofti, eikar plankaparket á gólfi.
Herbergi IV: Fataskápur, eikar plankaparket á gólfi, velux gluggi.
Herbergi V: Fataskápur, eikar plankaparket á gólfi, velux gluggi.
Sérgeymsla: Stór geymsla er í sameign í kjallara.
Bílastæði: Gott sérbílastæði er í bílakjallara.
Sameign: Hjóla og vagnageymsla, ásamt dekkjageymslu.
Gólfefni eru flísar og fasað Eikar plankaparket, loftapanell og innfelld lýsing í loftum, þakgluggar og velux gluggar í loftum veita mikilli birtu inn í þessa fallegu eign. Góð fjölskyldueign sem vert er að skoða, á góðum stað í Garðabæ. Upplýsingar um eigina veitir Sigrún Matthea lgf. í síma 695-3502 eða á netfang sms@remax.is
Ert þú í söluhugleiðingum / fasteignahugleiðingum ? og ekki búinn að fá verðmat á eignina þína verðmat er án kostnaðar og skuldbindingar fyrir þig, velkomið að vera í sambandi við mig netf. sms@remax.is eða sími 695-3502
Í lögum um fasteignakaup lög nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. RE/MAX fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.