Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Furulundur 51
**Opið hús mánudaginn 20. janúar milli kl. 12:15 og 13**
Virkilega falleg og mjög vel skipulögð 4 herbergja raðhúsaíbúð með sambyggðum bílskúr á vinsælum stað á Brekkunni. Eignin er samtals 139,1 fm. en þar af er bílskúr 26,4 fm..
Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, þvottahús og geymslu, geymsluloft og bílskúr.
Forstofa er með ljósar flísar á gólfi og góðum fataskáp.
Stofa er með parket á gólfi, upptekið loft með innfeldri lýsingu og þaðan er gengið út á steypta verönd til austurs. Fallegir þakgluggar gefa góða birtu inn í rýmið.
Eldhús er mjög rúmgott með dökkar flísar á gólfi, mjög góða innréttingu með stæði fyrir uppþvottavél, bakaraofn í vinnuhæð og tvöfaldan ísskáp og frysti. Fallegar dökkar flísar milli skápa, ljós bekkjarplata (steinn) og stórir gluggar til tveggja átta.
Baðherbergi er með gráar flísar á gólfi, góða innréttingu í kringum vask, upphengt salerni, handklæðaofn, sturtuklefa og skáp gegnt sturtu.
Svefnherbergi eru þrjú, öll með parket á gólfi og skápum.
Þvottahús og geymsla er milli íbúðar og bílskúrs, þar eru flísar á gólfi, góð innrétting með miklu skápaplássi er í þvottahúsi og þar er stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Úr geymslu er uppgengt um fellistiga á loft sem er yfir stórum hluta íbúðar. Þar er einangrað og klætt geymsluloft í dag með opnanlegum þakglugga. Lítið mál er að gera úr því gott rými sem nýst getur á ýmsa vegu.
Bílskúr er með flísar á gólfi, bæði inngöngu hurð og rafdrifinni innkeyrsluhurð og innréttingu með vask.
Annað:
-Hleðslustöð
-Varmaskiptir
-Gólfhiti í allri íbúðinni
-Hiti í bílaplani sem rúmar tvo bíla og steyptri stétt að inngangi.
-Nýlega skipt um innfelld ljós í stofu með ljósdeyfingu
-Nýlega skipt um gólfhitadælu
-Málað að utan síðastliðið sumar
-Steypt verönd bæði austan og vestan við hús
-Mjög skemmtileg staðsetning, stutt í leik- og grunnskóla, íþróttasvæði KA, ásamt verslun og ýmiskonar þjónustu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:
olafur@byggd.is
greta@byggd.is
bjorn@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955