** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Björt og vel skipulögð 115,1 m2, 4ra herbergja, endaíbúð á efstu hæð með glæsilegu útsýni í lyftuhúsi, ásamt bílastæði í lokuðum bílakjallara við Álfkonuhvarf 39 í Kópavogi. Svalir í suðurátt með svalalokun. Eignin er skráð 115,1 m2 , þar af íbúð 104,7 m2 og geymsla 10,4 m2. Íbúðin skiptist í forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Sérgeymsla er í kjallara. Bílastæði í lokuðum bílakjallara fylgir eigninni.
Vinsæl staðsetning við Ögurhvarf í Kópavogi. Stutt í vinsæl útivistarsvæði, skóla, verslun og alla helstu þjónustu.Verið er að skipta um glugga þar sem það er þörf á í húsinu á vegum húsfélagsins og greiðir seljandi kostnað vegna þessara framkvæmda.** Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax **Nánari lýsing: Forstofa er með fataskáp og skúffum. Flísar á gólfi.
Gangur er með flísum á gólfi.
Stofa/borðstofa er björt með parketi á gólfi. Útgengt er á svalir með svalalokun í suðurátt með fallegu útsýni.
Eldhús er með flísum á gólfi, snyrtilegri innréttingu með stein á borðum og borðkrók. Flísar eru milli efri og neðri skápa. Í innréttingu er bakaraofn, örbylgjuofn, helluborð og vifta. Gert er ráð fyrir að ísskáp og uppþvottarvél í innréttingu.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er með parketi á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 3 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, innréttingu með handlaug og stein á borði, vegghengdu salerni, baðkari, sturtuklefa og handklæðaofni.
Þvottahús er inn af baðherbergi með fataskápum og flísum á gólfi. Gluggi er í þvottahúsi.
Sérgeymsla er í sameign í kjallara, skráð 10,4 m2. Hillur í geymslu fylgja.
Bílastæði er í lokuðum bílakjallara merkt B16.
Sameiginleg
hjóla- og vagnageymsla er í sameign í kjallara.
Verð kr. 88.900.000,-