LF-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali thordis@lindinfasteignir.is kynna: Túngata 11B, Eskifirði ásamt EIGNARLÓÐ. Mjög rúmgott einbýlishús ásamt bílskúr. Hér er sannkallað fjölskylduhús og í raun eru 2 íbúðir í húsinu svo möguleiki er á leigutekjum. Húsinu hefur verið haldið mjög vel við. Húsið er byggt í tvennu lagi. Upphaflega húsið er rúmgott og fallegt hús með mansard-þaki og er byggingarár þess skráð 1925, árið 1977 var húsið stækkað verulega með vandaðri byggingu á 2 hæðum, sú viðbygging er 112 fermetrar en eldra húsið 94 fermetrar. Bílskúrinn er 25 fermetrar byggður 1963 Húsið stendur hátt á fallegri lóð miðsvæðis á Eskifirði. Fallegt og mikið útsýni er frá húsinu. Á efri hæð eignarinnar er góð flísalögð forstofa og lítið baðherbergi með sturtu inn úr henni. Lítill gangur með góðum fataskáp er við hlið forstofunnar, úr honum er gengið inn í rúmgóða stofu með flottum útsýnisgluggum og er opið milli eldhúss og stofu. Eldhúsið er með góðri nokkuð stórri innréttingu og einnig er gott vinnuherbergi á hæðinni. Þessi rými eru í nýrri hluta hússins. Í eldri hluta efri hæðarinnar er mjór gangur og við hann 3 góð svefnherbergi og rúmgott baðherbergi með baðkari og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Lítil geymsla er við enda gangsins. Mjór og brattur stigi liggur niður á neðri hæðina þar sem í raun er önnur íbúð sem samanstendur af forstofu, rúmgóðri stofu, skemmtilegu eldra eldhúsi, baðherbergi með baðkari, 2 svefnherbergjum, holi sem getur nýst sem vinnuaðstaða og mjög miklu geymslurými í nokkrum aðskildum rýmum. SKIPTI Á EIGN (verð allt að 90 milljónir) Í REYKJAVÍK, KÓPAVOGI EÐA MOSFELLSBÆ KOMA TIL GREINA.
Byggt 1977
231.2 m2
8 Herb.
6 Svefnh.
Garður
Bílskúr
Fasteignanúmer
2170598
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
St+hlaðið
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Upphitun
Hitaveita
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
LF-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali thordis@lindinfasteignir.is kynna: Túngata 11B, Eskifirði ásamt EIGNARLÓÐ. Mjög rúmgott einbýlishús ásamt bílskúr. Hér er sannkallað fjölskylduhús og í raun eru 2 íbúðir í húsinu svo möguleiki er á leigutekjum. Húsinu hefur verið haldið mjög vel við. Húsið er byggt í tvennu lagi. Upphaflega húsið er rúmgott og fallegt hús með mansard-þaki og er byggingarár þess skráð 1925, árið 1977 var húsið stækkað verulega með vandaðri byggingu á 2 hæðum, sú viðbygging er 112 fermetrar en eldra húsið 94 fermetrar. Bílskúrinn er 25 fermetrar byggður 1963 Húsið stendur hátt á fallegri lóð miðsvæðis á Eskifirði. Fallegt og mikið útsýni er frá húsinu. Á efri hæð eignarinnar er góð flísalögð forstofa og lítið baðherbergi með sturtu inn úr henni. Lítill gangur með góðum fataskáp er við hlið forstofunnar, úr honum er gengið inn í rúmgóða stofu með flottum útsýnisgluggum og er opið milli eldhúss og stofu. Eldhúsið er með góðri nokkuð stórri innréttingu og einnig er gott vinnuherbergi á hæðinni. Þessi rými eru í nýrri hluta hússins. Í eldri hluta efri hæðarinnar er mjór gangur og við hann 3 góð svefnherbergi og rúmgott baðherbergi með baðkari og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Lítil geymsla er við enda gangsins. Mjór og brattur stigi liggur niður á neðri hæðina þar sem í raun er önnur íbúð sem samanstendur af forstofu, rúmgóðri stofu, skemmtilegu eldra eldhúsi, baðherbergi með baðkari, 2 svefnherbergjum, holi sem getur nýst sem vinnuaðstaða og mjög miklu geymslurými í nokkrum aðskildum rýmum. SKIPTI Á EIGN (verð allt að 90 milljónir) Í REYKJAVÍK, KÓPAVOGI EÐA MOSFELLSBÆ KOMA TIL GREINA.
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.