BYR fasteignasala kynnir í einkasölu MIÐGARÐUR 1A , 700 Egilsstaðir. Fjögurra herbergja parhúsaíbúð á tveimur hæðum í parhúsi innst við botnlanga. Góð staðsetning á vinsælum stað á Egilsstöðum, vel skipulagt fjölskylduhús. Opið svæði er við húsið, stutt í alla almenna þjónustu s.s. skóla og íþróttamiðstöð og útivistarsvæði. Útsýni að Héraðsflóa og Fjarðarheiði, suðurgarður, kvöldsól. Smellið hér fyrir staðsetningu.
Skipulag eignar: Neðri hæð: Anddyri, eldhús, stofa og borðstofa, gestasalerni, skáli og þvottahús/geymsla, stigi. Efri hæð: Þrjú svefnherbergi, baðherbergi og geymsla.
Nánari lýsing
Neðri hæð:Anddyri, þaðan er innangengt í þvottahús/geymslu.
Eldhús, nýleg Brúnás innrétting, helluborð, háfur, Electrolux ofn í vinnuhæð. Gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu (Electrolux uppþvottvél getur mögulega fylgt).
Stofa og borðstofa eru saman í rými, útgengt er út í garð frá borðstofuhluta.
Gestasalerni, salerni og handlaug.
Þvottahús og geymsla, geymsluinnrétting og vinnuborð, gluggi. Rafmagnstafla og hitagrind er í þvottahúsi.
Skáli (hol) er inn af anddyri, fatahengi, timburstigi liggur frá skála upp á efri hæð.
Efri hæð:
Gangur, liggur að rýmum efri hæðar, lúga með stiga er uppá
loft á gangi. Geymslupláss að hluta.
Þrjú svefnherbergi. Hjónaherbergi með fjórföldum fataskáp.
Barnaherbergin eru tvö, bæði með fataskáp.
Baðherbergi með baðkari, vaskinnréttingu og salerni, gluggi. Inn af baðherbergi er
geymsla.
Geymsla er inn af baðherbergi, undir súð.
Gólfefni: Nýtt harðparket er á skála undir stiga og stofu. Náttúruflísar á anddyri, eldhúsi, gestasalerni og þvottahúsi/geymslu. Upprunalegur dúkur á svefnherbergjum og baðherbergi á efri hæð.
Húsið er parhús, steypt á tveimur hæðum með risþaki. Húsið er nýlega málað. Utanhússklæðning hússins var endurnýjuð í heild sinni, húsið var klætt að utan með bárujárnsklæðningu fyrir u.þ.b. 5 árum. Þakið er nýlega málað. Lóð er gróin. Bílastæði er framan við húsið. Opið svæði er við húsið. Lóðin er sameiginleg 1065,0 m² leigulóð frá Fljótsdalshéraði.
Skráning eignarinnar hjá HMS:Stærð: Íbúð á hæð 01-0101, 71,4 m². Íbúðarherb í risi 01-0201, 61,2 m², samtals 132,6 m².
Brunabótamat: 62.300.000 kr.
Fasteignamat: 50.950.000 kr. Fasteignamat 2025: 55.350.000 kr.
Byggingarár: 1984
Byggingarefni: Steypa.