Mjög fallegt og vel skipulagt 316,3 fm einbýlishús á tveimur hæðum með 2ja herb. aukaíbúð með sérinngangi á eftirsóttum og rólegum stað í Skerjafirði. 7 svefnherbergi. Rúmgóður innangengur bílskúr með geymslurými. Húsið stendur á 639 fm eignarlóð. Mjög mikil lofthæð er í hluta hússins. Arinn er í húsinu. Gróin lóð. Búið að endurnýja húsið mikið á síðustu mánuðum. Ný eldhúsinnrétting, ný eldhústæki, öll gólf flotuð, nýtt parket, nýjar innihurðir, stærstur hluti raflagna endurnýjaður og veggir sprautusparslaðir. Aukaíbúð er í útleigu og skilar föstum tekjum, leigusamningur getur fylgt. Möguleiki á að taka ódýrari íbúðHúsið skiptist m.a. í forstofu, hol, stofu, borðstofu, eldhús, 6 svefnherbergi, 3 baðherbergi og þvottahús.
Auk þess er 2ja herb. íbúð með sér inngangi á aðalhæð hússins. Íbúðin er mikið endurnýjuð, nýtt parket, eldhúsinnrétting og tæki, hurðir, loftaklæðning, rafmagn og allt ný málað. Íbúðin er í góðri útleigu og leigusamningur getur fylgt. Í kjallara hússins er mjög stórt óskráð rými sem er nýtt sem geymslurými. Hiti er í bílaplani og stétt fyrir framan húsið.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun er hjá Guðbjörgu G. Sveinbjörnsdóttur lgfs. fasteignasali s. 899-5949 eða á netfanginu
gudbjorg@trausti.isEignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 316,3fm. og þar af er bílskúr skráður 36,3fm.
Fasteignamat fyrir árið 2025 verður 213.200.000kr.
Nánari lýsing:Forstofa rúmgóð með fatahengi og flísar á gólfi.
Gestasnyrting er inn af forstofu, flísar á gólfi.
Hol með parketi á gólfi. Úr holi liggur
stigi niður á neðri hæð hússins.
Arinstofa/fjölskylduherbergi (svefnherbergi 1) er með parketi á gólfi. Áður var rýmið opið við holið og því
auðvelt að opna það aftur. Útgengt er út í garð úr herberginu.
Svefnherbergi 2 (húsbóndarými skv. teikningum) mjög rúmgott og parket á gólfi. Frá holi er gengið upp nokkur þrep í stofur og eldhús.
Stofa/borðstofa eru samliggjandi, rúmgóðar og bjartar með mikilli lofthæð og parketi á gólfi. Stórir gluggar til suðvesturs.
Eldhús hefur nýlega verið endurnýjað með fallegri innréttingu. Öll tæki eru ný, innbyggð uppþvottavél, ísskápur og vínkælir. Parket á gólfi. Eldhús er opið við borðstofu.
Búr er inn af eldhúsi.
Stigi liggur niður úr holi niður á neðri hæð hússins. Einnig er
sérinngangur er á neðri hæðina.
Neðri hæð:
Á hæðinni er forstofa, fjögur rúmgóð svefnherbergi, tvö baðherbergi (annað með sturtu en hitt með
baðkari), sjónvarpshol, skrifstofurými og þvottahús.
Forstofa með fatahengi og flísum á gólfi.
Rúmgott
hol, er nýtt í dag sem gott sjónvarpsrými.
Hjónaherbergi (svefnherbergi 3) er rúmgott með góðu skápaplássi og parketi á gólfi. Baðherbergi er inn
af hjónaherbergi. Útgengt út í garð úr herberginu.
Baðherbergi inn af hjónaherbergi er með sturtuklefa, glugga, handklæðaofni og flísalagt í hólf og gólf.
Svefnherbergi 4 rúmgott með parketi á gólfi.
Svefnherbergi 5 rúmgott með parketi á gólfi.
Svefnherbergi 6 rúmgott með parketi á gólfi. Útgengt er út í garð úr herberginu.
Baðherbergi með baðkari, nýju blöndunartæki og handklæðaofni. Upprunaleg innrétting, flísalagt gólf.
Þvottahús er á jarðhæð.
Óskráð rými í kjallara er mjög stórt og býður upp á margvíslega notkunarmöguleika.
Auka 2ja herbergja íbúð á aðalhæð hússins sem er í útleigu og getur leigusamningur fylgtInngangur í íbúðina er við hlið aðalinngangs í húsið.
Íbúðin er mikið endurnýjuð; nýtt parket, ný loftaklæðning, nýtt rafmagn, nýtt eldhús og tæki, nýjar innihurðir og allt ný málað.
Forstofa er parketlögð.
Stofa er rúmgóð og björt með parketi á gólfi og stórum gluggum sem snúa í vestur.
Eldhús er opið við stofuna, ný eldhúsinnrétting og tæki og parket á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með parketi á gólfi.
Baðherbergi er rúmgott með innangengri sturtu, tengi fyrir þvottavél, flísalagt í hólf og gólf.
Bílskúr:Bílskúr er rúmgóður skráður 36,3fm., innangengt er í bílskúrinn úr húsinu og hurð liggur út í garð.
Bílaplan og stétt fyrir framan húsið er með hitalögn.
Húsið er steypt og með epoxy klæðningu á steypu.
Járn á þaki var endurnýjað fyrir u.þ.b. 16 árum síðan.
Frábær staðsetning á rólegum stað í Skerjafirði. Stutt í fallegt útivistarsvæði og göngufæri í miðbæ Reykjavíkur.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is