Fasteignaleitin
Skráð 4. okt. 2024

Valshlíð 3

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
69.9 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
75.900.000 kr.
Fermetraverð
1.085.837 kr./m2
IF
Irpa Fönn Hlynsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Fasteignanúmer
2532649
Landnúmer
223517
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Svalir
Byggingarstig
B1 - Byggingarleyfi

Hlíðarhorn.is kynnir Valshlíð 3 - Íbúð 311.

Íbúðin er staðsett í Hlíðarhorni, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðin er fullbúin og tilbúin til afhendingar.

Á sölusíðu eignarinnar í fasteignasölukerfi S8 ehf í eCASA færðu með rafrænum skilríkjum aðgang að söluyfirliti íbúðar og öðrum skjölum er varða eignina og getur jafnvel gert tilboð beint í íbúðina.

S8 ehf. býður fjölbreyttar leiðir til að eignast eða flytja í nýtt og glæsilegt heimili á frábærum stað í miðborginni. Skoðaðu hvað leiðir eru í boði á s8.is eða sendu fyrirspurn á s8@s8.is eða hlidarhorn@s8.is. Þú getur líka hringt í síma 4152500 og fengið allar upplýsingar um íbúðina, bókað skoðun beint í Hlíðarhorni, mátað íbúðina og við finnum þá leið sem hentar þér best.

Falleg og vönduð 2ja herbergja íbúð á 3. hæð á suðurhlið Hlíðarhorns. Birt stærð er 69,9 fm þar af 5,6 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu í opnu rými með útgengi á svalir, svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, gæðaraftækjum frá Siemens, hágæða ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Mjöll 2.

Nánari lýsing: Í anddyri er góður fataskápur. Gengið er beint inn í rúmgott alrými; eldhús og stofa/borðstofa með útgengi á rúmgóðar suðursvalir. Ljós eldhúsinnrétting, ljósyrjóttur quartz-steinn á borðum og milli skápa og blöndunartæki úr burstuðu stáli. Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum. Baðherbergi er með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar á gólfi og veggjum, ljós innrétting og speglaskápur með lýsingu. Blöndunartæki úr burstuðu stáli. Afmörkuð aðstaða á baði fyrir þvottavél og þurrkara. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0042. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 einstaklega vandaðar og fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Íbúðirnar eru sérstaklega vandaðar í alla staði, hvað varðar hönnun, innréttingar og tæki. Einungis er unnið með bestu fáanlegu lausnir og efni og umhverfisvernd höfð að leiðarljósi. Hver íbúð hefur sérstæða loftræsingu með varmaendurvinnslu og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og við, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.

Á heimasíðu Hlíðarhorns, www.hlidarhorn.is, getur þú skoðað allar þær fjölbreyttu íbúðir sem eru og verða til sölu í Hlíðarhorni, á þessum frábæra stað í miðbænum.

Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins, ásamt upplýsingum er varða hönnun byggingarinnar.

ATH: Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

ATH: Hlíðarhorn fasteignasala er í eigu byggingaraðila og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf. Myndir úr íbúð í auglýsingu geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingarþema.

Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

Gjöld sem kaupandi þarf einnig að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi; fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (12)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Njálsgerði 2
Bílskúr
Skoða eignina Njálsgerði 2
Njálsgerði 2
860 Hvolsvöllur
165.8 m2
Fjölbýlishús
534
482 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Grænakinn 17
Bílskúr
Skoða eignina Grænakinn 17
Grænakinn 17
220 Hafnarfjörður
173.7 m2
Fjölbýlishús
835
805 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Skoða eignina Geirakot 1
Bílskúr
Skoða eignina Geirakot 1
Geirakot 1
356 Snæfellsbær
292.1 m2
Einbýlishús
614
291 þ.kr./m2
85.000.000 kr.
Skoða eignina Lindarhvammur 2
Opið hús:22. apríl kl 18:00-18:30
Skoða eignina Lindarhvammur 2
Lindarhvammur 2
220 Hafnarfjörður
110 m2
Fjölbýlishús
413
635 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin