Fasteignaleitin
Skráð 13. nóv. 2026

Bakkabraut 9 íb403

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
238.2 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
Verð
320.000.000 kr.
Fermetraverð
1.343.409 kr./m2
Fasteignamat
2 kr.
Mynd af Margrét Rós Einarsdóttir
Margrét Rós Einarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Jarðhæð · efsta
Garður
Svalir
Bílskúr
Bílastæði
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2242821_403
Landnúmer
178919
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Nýjar
Raflagnir
Nýjar
Frárennslislagnir
Nýjar
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Margir inngangar
Fasteignasalan TORG kynnir: Penthouse-íbúð í nýju fjölbýlishúsi með sjávar-útsýni, glæsilegum þaksvölum í suð-vestur, um 61fm og suður-svalir um 19,9fm. Íbúðin er í Bakkabraut 9, merkt: 0403 er á efstu hæð. Íbúðin liggur samhliða sjávar síðunni til suðurs hjá smábátahöfninni við Kársnes.  Íbúðin er einstaklega glæsileg, með gólfsíðum gluggum, mikilli lofthæð, 3 svefnherbergjum (Hjónasvítu), 2 baðherbergjum, stórt alrými sem skiptist í setustofu, borðstofu og eldhús, búr, þvottaherbergi, fataherbergi og forstofu. Alls er íbúðin skráð 238,2fm, þar af er íbúðin sjálf um 190,4fm, bílskúr (frístundaskúr) um 47,8fm, í bílakjallara ásamt tveimur bílastæðum í bílakjallara. Allar nánari uppl. veitir Margrét Rós fasteignasali í GSM: 856-5858 netfang margret@fstorg.is  og/eða Matthildur Sunna fasteignasali í GSM: 690-4966 netfang matthildur@fstorg.is

Sjá nánar heimasíðu verkefnisins VESTURBAKKI

Nánari lýsing íbúðar 403: Íbúðin afhendist tilbúin til innréttinga og miðast ásett verð við þau skil, sjá nánar skilalýsingu seljanda. Einnig er hægt er að fá íbúðina fullbúna án gólfefna, sjá nánar skilalýsingu, ásett verð miðað við fullbúna er kr. 350.000.000,-  Hægt er að velja milli tveggja þema, Steins eða Yls.

Íbúð 403: skiptist í anddyri með góðu skápaplássi, rúmgóða stofu, sjónvarpsrými, vínherbergi, borðstofu og eldhús með eyju í björtu og opnu alrými sem hentar einstaklega vel til samveru og móttöku gesta. Frá stofunni er útgengt á rúmgóðar þaksvalir sem snúa til vesturs og bjóða upp á glæsilega útiaðstöðu þar sem er möguleiki á að setja heitan pott. Íbúðin er með þremur svefnherbergjum, þar af er hjónasvíta með fataherbergi, sérbaðherbergi og útgengi á suðursvalir. Baðherbergi íbúðarinnar eru tvö, bæði með vönduðum innréttingum og góðri aðstöðu. Sérþvottahús er innan íbúðarinnar sem eykur þægindi í daglegu lífi.

Kaupendur geta haft áhrif á efnisval og skipulag eignarinnar, Allar nánari uppl. veitir Margrét Rós fasteignasali í GSM: 856-5858 netfang margret@fstorg.is  og/eða Matthildur Sunna fasteignasali í GSM: 690-4966 netfang matthildur@fstorg.is

Nánar um Vesturbakka verkefnið: Við Vesturbakka rísa 118 vandaðar íbúðir, þar sem fágaður arkitektúr, tímalaus hönnun og nútímaþægindi fara saman. Íbúðirnar eru fjölbreyttar og einkennast af vel útfærðu skipulagi og vönduðu efnisvali. Vesturbakki stendur við Kársneshöfn, þar sem framtíðarsýn Kópavogsbæjar fyrir svæðið er að taka á sig mynd. Í skipulagi er meðal annars gert ráð fyrir veitingastað og aðstöðu til sjósunds, sem munu stuðla að lifandi og aðlaðandi hafnarsvæði.

Sameiginleg aðstaða til afþreyingar og vellíðunar verður á 1. hæð við Vesturbakka 21b og stendur íbúum hússins til boða. Þar verður vönduð líkamsræktaraðstaða, sauna og útisvæði með heitum og köldum potti. Jafnframt verður þar golfhermir og aðstaða til pílukasts. Í bílakjallara verða 103 sérmerkt bílastæði og á lóð hússins verða 58 bílastæði til viðbótar.

Við hönnun bygginganna er lögð áhersla á þægindi og góða innivist, meðal annars með vönduðu byggingarefnavali. Allar íbúðir verða með gólfhita og sérstöku loftskiptikerfi, sem stuðlar að góðum loftgæðum.

Við fullbúin skil verða íbúðirnar útfærðar samkvæmt hönnunarþemunum Yl eða Steini, með innréttingum frá Parka eða Voke III og heimilistækjum frá Siemens. Helluborð verður með innbyggðri viftu og möguleika á þráðlausri fjarstýringu. Útfærsla eldhústækja verður mismunandi eftir íbúðum, en þar verða meðal annars sambyggðir baksturs- og örbylgjuofnar, frystar og vínkælar. Í íbúðunum verður einnig free@home hússtjórnunarkerfi, sem gerir íbúum kleift að stýra meðal annars hitastigi, lýsingu og gardínum. Tæknimaður kemur í hverja íbúð til að stilla kerfið og leiðbeina íbúum um notkun þess.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
2242821_403
Númer hæðar
0B
Númer eignar
82
47.8 m2
Fasteignanúmer
2242821_403
Númer hæðar
00
Númer eignar
09
Fasteignanúmer
2242821_403
Númer hæðar
0B
Númer eignar
81

Myndir (21)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Daltún 34
Heitur pottur
Skoða eignina Daltún 34
Daltún 34
200 Kópavogur
238,8 m2
Parhús
726
711 þ.kr./m2
169.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 12G
Bílastæði
Skoða eignina Hafnarbraut 12G
Hafnarbraut 12G
200 Kópavogur
80,2 m2
Fjölbýlishús
312
921 þ.kr./m2
73.900.000 kr.
Skoða eignina Fljótasel 22
Bílskúr
Hleðslustöð
Skoða eignina Fljótasel 22
Fljótasel 22
109 Reykjavík
260,5 m2
Raðhús
724
537 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Skoða eignina Gullsmári 6
Skoða eignina Gullsmári 6
Gullsmári 6
201 Kópavogur
80,6 m2
Fjölbýlishús
312
830 þ.kr./m2
66.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin