Guðmundur Þór Júlíusson og Ástþór Reynir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:Allar innréttingar og tæki eru sérvalin af innanhúsarkitekt til að mynda eina stílhreina heild, öll tæki og tæknibúnaður er fyrsta flokks. Íbúðin er máluð í ljósum lit. Hurðar í yfirstærðum eru einnig sprautulakkaðar í sama lit. Ytra efnisval bygginganna er í hæðsta gæðaflokki sem og allur lóðarfrágangur. Sameignagangar sérlega glæsilegir og minna á hótel, vandaðar eignir í sérflokki.
Bókið skoðun hjá Gumma Júl í síma 858-7410 eða með tölvupósti á netfangið gj@remax.is eða á Ástþór Reyni í síma 899-6753 eða með tölvupósti á netfangið arg@remax.isEignin er skráð sem hér segir hjá Þjóðskrá: nánar tiltekið eign merkt 04-203, birt heildarstærð 124,90 fm, þar af geymsla 6,4 fm. Nánari lýsing:Forstofa: forstofan er með fataskápum með lýsingu að innan og parketi á gólfi.
Baðherbergi: baðherbergið er afar glæsilegt með skápum fyrir neðan vask og speglaskápum fyrir ofan, Meganite borðplata með innbyggðum vaski úr sama efni, upphengdu salerni, "walk in" sturtu með innbyggðum blöndunartækjum frá Vola og flísum á gólfi og veggjum með marmaramunstri.
Svefnherbergi: svefnherbergið er rúmgott með góðu skápaplássi og parketi á gólfi.
Eldhús: eldhúsið er með glæsilegri innréttingu frá Noblessa með eyju. Borðplata er úr Meganite Carrara efni og með eldhúsvask sem felldur er í borðplötuna úr sama efni. Öll eldhústæki eru af vönduðustu gerð frá Siemens. Lýsing er undir efri skápum og ljúflokun á skúffum og skápum. Innbyggður kæliskápur, uppþvottavél og vínkælir fylgir. Auk þess innfelld kaffivél og innbyggður gufugleypir í eldhúseyju.
Stofa / borðstofa: stofan og borðstofan eru samliggjandi í opnu alrými með eldhúsinu með stórum gluggum í tvær áttir, parketi á gólfi og með útgengi á svalir.
Sjónvarpsstofa (eða svefnherbergi): sjónvarpsstofan er innaf stofunni með parketi á gólfi. Hún er með glugga og því auðvelt að breyta henni í svefnherbergi (sjá teikningar).
Þvottaherbergi: þvottaherbergið er með góðri innréttingu frá Noblessa og stæði fyrir þvottavél og þurrkara, skolvaski og flísum á gólfi.
Geymsla: 6,6 fm sérgeymsla í sameign.
Hjóla - vagnageymsla: sameiginleg hjóla - og vagnageymsla í sameign.
Sameign: Í sameign er einnig sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Bílastæði: Íbúum Hafnartorgs stendur til boða að leigja bílastæðakort skv. verðskrá bílageymslu Hafnatorgs, undir byggingunum er einn stærsti bílakjallari landsins með um 1160 bílastæðum.
Hafnartorg skartar 70 hágæða íbúðum. Allar innréttingar og tæki eru sérvaldar af innanhúsarkitekt til að mynda eina stílhreina heild og eru öll tæki og tæknibúnaður fyrsta flokks. Allt ytra efnisval bygginganna er í hæsta gæðaflokki sem og allur lóðarfrágangur. Undir húsunum er stærsti bílakjallari landsins sem nær allt til Hörpunnar. Íbúðirnar eru frábærlega staðsettar í nálægð við menningu, sögu, verslun og þjónustu. Glæsilegar fasteignir í hjarta Reykjavíkur með iðandi mannlíf allt árið um kring.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir: Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma
858-7410 eða gj@remax.is
Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma
899-6753 eða arg@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.