Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. og Trausti fasteignasala kynna í einkasölu bjarta og fallegt 4-5 herbergja raðhús á tveimur hæðum með risi og stórum sólpalli með heitum potti í Húsahverfinu í Grafarvogi. Tvö merkt stæði á sameiginlegu bílastæði fylgja eigninni. Nýlega var skipt um parket á allri eigninni, hurðir endurnýjaðar og eldhús endurnýjað. Efri hæð og ris talsvert undir súð, þannig að gólfflötur er töluvert meiri en skráning gefur til kynna.Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign
Fyrirhugað fasteignamat 2026 95.450.000 kr.
Eignin er skráð samkvæmt HMS 125,4 fm þar af er risherbergi skráð 9 fm en er þó með töluvert stærri gólfflöt.
Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Forstofa/anddyri með parket á gólfi.
Hol með parket á gólfi og góðan yfirhafnaskáp.
Þvottahús með steinsteypt gólf.
Stofa er rúmgóð með parket á gólfi. Útgengt á góðan sólpall til suðurs með heitum potti.
Borðstofa við hlið stofu er rúmgóð með parket á gólfi.
Eldhús var nýlega endurnýjað og er með innbyggðri uppþvottavél, bakaraofn í vinnuhæð, háf yfir spanhelluborði, flísar milli skápa og parket á gólfi.
Gestasalerni með upphengt salerni og flísar á gólfi.
Efri hæð:
Timburstigi með teppi upp á efri hæð.
Hol með parket á gólfi.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með góðum skápum og parket á gólfi.
Svefnherbergi II er rúmgott með skáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi III er rúmgott með skáp og parket á gólfi.
Baðherbergi er mjög rúmgott með baðkar og nýlega "walk-in" sturtu, flísar á gólfi og vegg að hluta. Gluggi á baðherbergi.
Ris/geymsluloft yfir stigapalli og herbergjum, skráð 9 fm en töluvert stærri gólfflötur sem er undir súð. Möguleiki á að breyta í herbergi.
Góð upphituð sérgeymsla er beint fyrir utan inngang hússins.
Stutt í alla helstu þjónustu, leik- og grunnskóla, sund og íþróttastarf sem og góðar gönguleiðir og útivist.
Nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is