Fasteignaleitin
Skráð 1. okt. 2026

Dalsbraut 1

FjölbýlishúsSuðurnes/Reykjanesbær/Njarðvík-260
100.6 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
65.600.000 kr.
Fermetraverð
652.087 kr./m2
Fasteignamat
65.100.000 kr.
Brunabótamat
55.800.000 kr.
Mynd af Lilja Valþórsdóttir
Lilja Valþórsdóttir
www.prodomo.isEignalisti
Byggt 2023
Jarðhæð af 3
Garður
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
2526454
Landnúmer
208251
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
09
Vatnslagnir
sagt í lagi
Raflagnir
sagt í lagi
Frárennslislagnir
sagt í lagi
Gluggar / Gler
sagt í lagi
Þak
sagt í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
verönd
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
PRODOMO fasteignasala kynnir í sölu bjarta og sérlega vel skipulagða 100,6 fm endaíbúð á jarðhæð með fjórum svefnherbergjum að Dalsbraut 1 Reykjanesbæ.
Íbúðarrýmið sjálft er 94,7 fm og sérgeymsla í sameign telur 5,9 fm.

Um er að ræða afar fjölskylduvæna eign á jarðhæð þar sem fermetrarnir eru nýttir til hins ýtrasta. Einstaklega sjaldgæft er að finna fjögur svefnherbergi í íbúð af þessari stærð, sem gerir eignina að frábærum kosti fyrir stærri fjölskyldur.

***Eignin getur verið laus við kaupsamning


Nánari lýsing
Forstofa: Flísar á gólfi.
Svefnherbergi I: Staðsett inn af forstofu, með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi II: Með parketi á gólfi.
Svefnherbergi III: Með parketi á gólfi og fataskáp.
Hjónaherbergi (Svefnherbergi IV): Sérlega rúmgott með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Eldhús: Samtengt stofu í opnu og björtu alrými. Grá, stílhrein innrétting með svörtum vaski og blöndunartækjum, innbyggðum ísskáp, uppþvottavél og bakarofni í þægilegri vinnuhæð.
Stofa: Parket á gólfi, bjart alrými og útgengt á hellulagða verönd.
Baðherbergi: Rúmgott og flísalagt í hólf og gólf. Stór innrétting við vask með ríkulegu skápaplássi, þriggja hurða speglaskápur, upphengt salerni, sturta með glervegg og handklæðaofn. Innréttuð aðstaða er fyrir þvottavél og þurrkara inni á baðherberginu.
Sérgeymsla: Sérgeymsla 5,9 fm fylgir íbúðinni í sameign með máluðu gólfi.

***Endaíbúð á jarðhæð með sérinngang.
***Fjögur svefnherbergi, þar af þrjú með fataskápum.
***Eldhús og stofa í opnu alrými með stílhreinni innréttingu og vönduðum tækjum.
***Rúmgott baðherbergi með þvottaaðstöðu.
***Merkt bílastæði og sérgeymsla fylgja eigninni.
***Stapaskólahverfi – Frábær staðsetning þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, sundlaug, íþróttamiðstöð, bókasafn og verslun.


Frábærlega skipulögð og rúmgóð fjölskyldueign á jarðhæð sem vert er að skoða.

Allar nánari upplýsingar veita:
Lilja Valþórsdóttir
Löggiltur fasteignasali
420-4030 / 860-6886
lilja@prodomo.is

Hákon Ó. Hákonarson
Löggiltur fasteignasali
420-4030 / 899-1298
hakon@prodomo.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
02/01/202423.450.000 kr.511.000.000 kr.733.2 m2696.944 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (45)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Dalsbraut 1
Skoða eignina Dalsbraut 1
Dalsbraut 1
260 Reykjanesbær
81.7 m2
Fjölbýlishús
413
734 þ.kr./m2
60.000.000 kr.
Skoða eignina Dalsbraut 1
Skoða eignina Dalsbraut 1
Dalsbraut 1
260 Reykjanesbær
85.4 m2
Fjölbýlishús
4
732 þ.kr./m2
62.500.000 kr.
Skoða eignina Bjarkardalur 21
Skoða eignina Bjarkardalur 21
Bjarkardalur 21
260 Reykjanesbær
108.2 m2
Fjölbýlishús
413
670 þ.kr./m2
72.500.000 kr.
Skoða eignina Bjarkardalur 21
Efsta hæð
Skoða eignina Bjarkardalur 21
Bjarkardalur 21
260 Reykjanesbær
108.2 m2
Fjölbýlishús
413
670 þ.kr./m2
72.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin