Fasteignaleitin
Skráð 1. okt. 2026

Dalsbraut 1

FjölbýlishúsSuðurnes/Reykjanesbær/Njarðvík-260
85.4 m2
4 Herb.
Verð
62.500.000 kr.
Fermetraverð
731.850 kr./m2
Fasteignamat
58.350.000 kr.
Brunabótamat
47.900.000 kr.
Mynd af Lilja Valþórsdóttir
Lilja Valþórsdóttir
www.prodomo.isEignalisti
Byggt 2023
Jarðhæð
Pallur
Fasteignanúmer
2332269
Landnúmer
208251
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Leigulóð
PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu bjarta og glæsilega fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð í nýlegu lyftuhúsi að Dalsbraut 1, Reykjanesbæ.
Eignin skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, ásamt stofu og eldhúsi í björtu, opnu alrými. Gólfsíðir gluggar prýða alrýmið og þaðan er útgengt á hellulagða verönd. Eigninni fylgir 5,0 fm sérgeymsla í sameign ásamt merktu bílastæði á lóð.


***Eignin getur verið laus við kaupsamning

Nánari lýsing
Forstofa: Flísar á gólfi og góður forstofuskápur.
Eldhús: Grár og stílhrein innrétting með innbyggðum ísskáp, uppþvottavél og bakarofni í vinnuhæð. Parket á gólfi.
Stofa og borðstofa: Bjart alrými í samflæði við eldhús. Fallegir gólfsíðir gluggar hleypa mikilli dagsbirtu inn og útgengt er á hellulagða verönd. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Barnaherbergi I: Parket á gólfi og fataskápur.
Barnaherbergi II: Parket á gólfi.
Baðherbergi / þvottaaðstaða: Flísalagt í hólf og gólf með gráum flísum. Dökkgrá innrétting við vask, speglaskápur, upphengt salerni, handklæðaofn og rúmgóð „walk-in“ sturta. Aðstaða er fyrir þvottavél og þurrkara inni á baðherberginu.
Sérgeymsla: 5,0 fm sérgeymsla staðsett í sameign hússins.
Bílastæði: Eigninni fylgir sérstaklega merkt bílastæði á bílaplani.

***Nýlegt hús byggt árið 2023 
***Jarðhæð með sérinngang
***Gólfsíðir gluggar í stofu sem skapa mikla birtu og rúmtilfinningu.
***Þrjú svefnherbergi og vandaðar innréttingar.
***Merkt bílastæði og sérgeymsla fylgja eigninni.
***Stapaskólahverfi – Frábær staðsetning þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, sundlaug, íþróttamiðstöð, bókasafn og verslun.



Dalsbraut 1 er vandað þriggja hæða steinsteypt fjölbýlishús byggt árið 2023, teiknað af JeES arkitektum. Útveggir eru einangraðir að utan og klæddir loftræstri álklæðningu ásamt viðarklæðningu að hluta sem tryggir lítið viðhald. Gluggar og útihurðir eru úr tré og áli. Í húsinu er lyfta og upphitun er með ofnum.
Eigninni fylgir sérafnotaflötur á lóð fyrir verönd samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er lokuð og upphituð. Sorpkerfi er í snyrtilegum djúpgámum á lóð.

Virkilega falleg og vönduð fjölskylduíbúð á eftirsóttum og barnvænum stað í Dalshverfi sem vert er að skoða!

Allar nánari upplýsingar veita:
Lilja Valþórsdóttir
Löggiltur fasteignasali
420-4030 / 860-6886
lilja@prodomo.is

Hákon Ó. Hákonarson
Löggiltur fasteignasali
420-4030 / 899-1298
hakon@prodomo.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
02/01/202421.000.000 kr.511.000.000 kr.733.2 m2696.944 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (41)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Heiðarhvammur 6
Efsta hæð
Skoða eignina Heiðarhvammur 6
Heiðarhvammur 6
230 Reykjanesbær
62.4 m2
Fjölbýlishús
211
623 þ.kr./m2
38.900.000 kr.
Skoða eignina Dalsbraut 1
Skoða eignina Dalsbraut 1
Dalsbraut 1
260 Reykjanesbær
81.7 m2
Fjölbýlishús
413
734 þ.kr./m2
60.000.000 kr.
Skoða eignina Bjarkardalur 21
Skoða eignina Bjarkardalur 21
Bjarkardalur 21
260 Reykjanesbær
108.2 m2
Fjölbýlishús
413
670 þ.kr./m2
72.500.000 kr.
Skoða eignina Bjarkardalur 21
Efsta hæð
Skoða eignina Bjarkardalur 21
Bjarkardalur 21
260 Reykjanesbær
108.2 m2
Fjölbýlishús
413
670 þ.kr./m2
72.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin