Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölu Klængsbúð 18, 815 Þorlákshöfn:Fallegt og vel skipulagt 4ra herbergja endaraðhús með innbyggðum bílskúr. Samkvæmt fasteignaskrá er eignin samtals 121,5 fm. þar af er íbúðarhluti 97,7 fm. og bílskúr 28,8 fm. Umhverfis húsið er gróinn garður með suðvestur sólpall. Húsið er einstaklega vel staðsett miðsvæðis í Þorlákshöfn þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttamiðstöð/sundlaug og verslanir.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAXEignin skiptist í anddyri, í alrými er eldhús / stofa og borðstofa, gangur, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.
Nánari lýsing: Anddyri: Með góðum skáp, flísar á gólfi.
Stofa / borðstofa: Í alrými er björt og rúmgóð stofa / borðstofa, útgengi út á ca. 50 fm. suðurvestur sólpall, parketi á gólfi.
Eldhús: Í alrými er bjart eldhús, hvít Ikea eldhúsinnrétting, bakaraofn, spanhelluborð, innbyggð uppþvottavél og ísskápur, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott, Ikea fataskápur, parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Gott parketlagt herbergi.
Svefnherbergi 3: Gott parketlagt herbergi.
Gangur: Parket á gólfi.
Baðherbergi: Rúmgott, hvít baðherbergisinnrétting og speglaskápur, upphengt salerni, flísar á gólfi og hluta af veggjum.
Þvottahús: Inna af bílskúr er rúmgott þvottahús, útgengi út á suðvestur sólpall, epoxy á gólfi.
Bílskúr: Innbyggður 28,8 fm. bílskúr, innangengt úr anddyri, heitt og kalt vatn, geymsluloft, epoxy á gólfi.
Húsið: Húsið er byggt 2019 og er timburhús klætt að utan með bárujárni. Gólfhiti er í húsinu.
Lóð: Gróinn lóð. Framan við húsið er malbikuð innkeyrsla , á baklóð er ca. 50 fm. suðvestur sólpallur, gras og garðhús.
Hér er um að ræða virkilega fallega og vel staðsetta eign. Þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, sundlaug og íþróttahús. Eign sem vert er að skoða.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is.
Þorlákshöfn:Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.