Domusnova kynnir fallega og rúmgóða fjölskyldueign að Álakvísl 80. Eignin er með þremur svefnherbergjum en einnig er viðbótar herbergi í risi íbúðar. Frábær eign í góðu hverfi.
Eignin hefur fengið reglulegt viðhald í gegnum tíðina.
Lýsing eignar:Gengið upp stiga meðfram húsi upp á aðra hæð eða 1. hæð íbúðar:Forstofa: Rúmgóð með flísum á gólfi og góðum skápum. Hluti af forstofurými var áður gestabaðherbergi, auðvelt að breyta aftur.
Eldhús: Parket á gólfi, með fallegri hvítri innréttingu og borðkrók. Eldhús endurnýjað árið 2010.
Stofa/borðstofa: Rúmgóð stofa auk borðstofu með parketi gólfi. Góðar svalir til vesturs en þær voru endurnýjaðar árið 2019.
Hvítur stigi úr timbri liggur upp á 2. hæð íbúðar: Svefnherbergi: Rúmgott svefnherbergi með parket á gólfi og góðum fataskáp.
Svefnherbergi: Rúmgott svefnherbergi með parket á gólfi og góðum fataskáp.
Svefnherbergi: Rúmgott svefnherbergi með parket á gólfi.
Baðherbergi: Baðherbergið er ný flísalagt með baðkari og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Verið að vinna að uppsetningu innréttingar, klárast fyrir afhendingu.
Af svefnhergisgangi er timburstigi sem liggur upp á risloft sem er um 15-20 fm sem er í dag nýtt sem herbergi. Lofthæð undir mæni er um 185 cm. Parketlagt og með velux þakglugga. Geymsluými er undir súð.
Eignin hefur fengið reglulegt viðhald og endurbætur í gegnum tíðina.
Um er að ræða mjög fallega eign á góðum og rólegum stað
Smelltu
hér til að fá söluyfirlit strax.
Nánari upplýsingar veita:Ragnheiður Rún Gísladóttir löggiltur fasteignasali ragga@domusnova.is / sími 861-4644
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.