Hraunhamar fasteignasala kynnir: Glæsilegt fjölskylduvænt raðhús á tveimur hæðum með bílskúr í Ásahverfinu í Hafnarfirði. Alls er húsið skráð 250,2fm, og skiptist í efri og neðri hæð, ásamt góðum bílskúr, þar af skráður 29,1fm. Frábært útsýni og staðsetning aldeilis fín, í göngufæri við rómaðann Áslandsskólann, og alla náttúru. Þetta er áhugaverð vönduð eign sem vert er að skoða frekar ! Nánari lýsing: Komið er inn í góða forstofu með skápum.
Gestasalerni er við forstofu.
Eitt svefnherbergi er á efri hæðinni.
Aðalrými: Eldhús og stofa í björtu alrými með glæsilegu útsýni og aukinni lofthæð. Eldhúsið er með vandaðri hvítri innréttingu og stórri eyju, stæði fyrrir tvöfaldan ísskáp. Útgengt á svalir og einnig frá
borðstofu út á sólpall með heitum potti úr alrýminu. Frá aðalrými er stigi niður á neðri hæð.
Bílskúr: Innangengt er í bílskúr úr alrými efri hæðar.
Terrazzogólfi, hiti, rafmagn, vatn og hurðaopnari. Neðri hæð, svefnbergi: tvö barnaherbergi, og hjónaherbergi með baðherbergi og útgengi út í garð. Innaf hjónaherberginu er rúmgott baðherbergi með sturtu og einnig fataherbergi/skápasvæði. Þvottaherbergi með miklu skápaplássi og stæði fyrir vélar í vinnuhæð.
Annað baðherbergi er einnig á hæðinni með baðkari og sturtu. Sjónvarpshol er frá gangi.
Garður: Lóðin er snyrtilega frágengin með terrazzosteyptu bílaplani, sólpall með heitum potti og grassvæði bakatil.
Að sögn seljanda hefur húsið verið talsvert endurnýjað undanfarin ár, meðal annars:- Nýtt rafmagn á allri efri hæð og einnig lýsing, hönnuð af Lumex
- Dúkaloft á alla efri hæð, með skuggafúgum, hannað af Lumex
- Nýr steinn í eldhúsi, Granít frá S-Helgason ásamt granít hillum í eldhúsi með lýsingu
- Íslenskt stuðlaberg hleðsla, hlaðið á vegg í anddyri og niður með stiga
- Nýjar sérsmíðaðar spónlagðar innihurðar á efri hæð, gereftislausar í hæð 240 cm
- Nýjar sérsmíðaðar útidyrahurðar við inngang
- Baðherbergi innaf hjónaherbergi endurnýjað
- Milliloft í bílskúr, ósamþykkt auka geymsla.
- Nýbúið að loka fyrir allar lagnir inni í bílskúr með snyrtilegum þjónustuhurðum- Nýtt Ajax öryggis- og myndavélakerfi, getur fylgt með eftir nánara samkomulagi
- Búið að skipta um þak, þ.e.a.s. nýtt þakjárn, pappi og nýjar þakrennur og niðurfallsrör, timbur var allt skoðað og leit út eins og nýtt
- Ný flísalagðar svalir- Flísar í anddyri, íslenskar stuðlabergsflísar- Svart steinsteypt terrazzó gólf í bílskúr og á bílaplani.- Pallur að framanverðu er 3ja ára gamall með harðvið.- Parket uppi er niðurlímt eikar parket, neðri hæð er fljótandi eikar parket.
Alvöru góð eign sem vert er að skoða frekar ! Nánari uppl. gefur Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is og
Glódís Helgadóttir lgf. s. 659-0510 glodis@hraunhamar.isSkoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.