Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali og Ragna Steinunn Arnarsdóttir, aðstoðarmaður fasteignasala hjá RE/MAX, kynna í einkasölu,Andrésbrunnur 6 björt og vel skipulögð 70,5 fm tveggjaherbergja íbúð með suðaustursvölum.
Um er að ræða fallega og vel skipulagða tveggja herbergja íbúð á annarri hæð í vönduðu þriggja hæða lyftuhúsi við Andrésbrunn 6 í Reykjavík.
Íbúðin skiptist í forstofu, rúmgott svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bjart alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa mynda eina heild. Úr stofu er gengið út á góðar svalir sem snúa til suðausturs. Rúmgóð, 7,6 fm sérgeymsla fylgir íbúðinni og sameiginleg hjólageymsla er á jarðhæð.
NÁNARI LÝSING
Forstofa: Flísalögð og með fataskáp. Forstofan opnast inn í bjart og rúmgott alrými íbúðarinnar.
Eldhús: Fallegar innréttingar með góðu skápa- og vinnuplássi ásamt eldunareyju. Eldhúsið er opið að borðstofu og stofu og skapar skemmtilegt rými fyrir fjölskyldu og gesti.
Stofa og borðstofa: Bjart og rúmgott alrými með góðum gluggum. Úr stofunni er útgengi á rúmgóðar svalir sem snúa til suðausturs.
Svefnherbergi: Rúmgott herbergi með góðu skápaplássi.
Baðherbergi: Fallega innréttað með sturtu með gleri, nuddbaðkari, hvítri innréttingu og upphengdu salerni.
Þvottahús: þvottahús með flísum á gólfi.
Eikarparket er á meginhluta íbúðarinnar en flísar eru á forstofu og í þvottahúsi. Sérgeymslan er 7,6 fm og staðsett í kjallara. Sameiginleg hjólageymsla er á jarðhæð. Bílastæði við húsið eru malbikuð og lyfta er í húsinu einnig hefur verið sett hleðslustöð fyrir bíla í sameignleg bílastæði.
Framkvæmdir síðustu ár skv seljanda:
- Gluggar yfirfarnir og endurnýjaðir eftir þörfum 2026
- Múrviðgerðir 2022
- Viðgerð og þétting á þaki 2018
- Endurnýjun á klæðningum yfir þakkanta og endurnýjun þakniðurfalla 2017
Stutt er í leik- og grunnskóla, verslun og aðra helstu þjónustu. Þá eru fallegar göngu- og útivistarleiðir í næsta nágrenni.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir:
Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma 858-7410 eða gj@remax.is
Ragna Steinunn Arnarsdóttir aðstoðarmaður fasteignasala í síma 858-9494 eða ragna@remax.is
Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma 899-6753 eða arg@remax.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.