Betri Stofan og Jason Kristinn fasteignasali sími 775 1515 og jason@betristofan.is kynnir: Heklureitur - Laugavegur 170 - 99 fm íbúð 203 sem er með suðursvölu og fær einnig útsýni til fjalla til norðurs. Íbúðin er með stæði í bílageymslu mekrt B24. Tvennar svalir. Afhending verður í janúar 2027.
Glæsileg 3ja herbergja útsýnisíbúð á 2. hæð með gæða ítölskum sérsmíðuðum innréttingum og nýjustu Siemens tækjum. Gólfhiti er í íbúðinni og eru flestir gluggar gólfsíðir. Eignin skiptist í anddyri með fataskápum, baðherbergi með sturtu og þvottaaðstoðu. Svefnherbergi að stærðinni 7,7 fm með glugga til norðurs. Hjónaherbergi er rúmlega 11,7 fm að stærð með fataskápum. Aðalrýmið skiptist í stofu, eldhús og sjónvarpsstofu. Glæsilegar innréttingar, eldhús með eyju. Siemens tæki af vandaðri gerðinni. Gluggar til norðurs og austurs. Stofan er með útgengi út á norðursvalir og útsýni er til fjalla. Stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni og sérgeymsla að stærðinni 15,6 fm, merkt -029
HeimasíðaHúsið er klætt með mismunandi litaðri álklæðningu ásamt Bambus sem gefur því lifandi yfirbragð og þarfnast lítils viðhalds.
Miðlæg staðsetning tryggir gott aðgengi að helstu umferðaræðum sem sparar tíma og peninga.
Örstutt í helstu stofnbrautir eins og Sæbraut, Kringlumýrabraut og Miklubraut.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem er 0,3% af væntanlegu brunabótamati
Bókið skoðun hjá sérfræðingum um eignina:
Jason Kristinn Ólafsson, sími 775 1515 / jason@betristofan.isÞórhallur Biering Guðjónsson, í síma 896-8232 / thorhallur@betristofan.is