Falleg og vel skipulögð 3-4ja herbergja íbúð í vönduðu fjölbýlishúsi sem byggt var 2020 við Elliðabraut.
- Bókið einkasýningu með því að senda póst á arni@palssonfasteignasala.is -
* Mjög rúmgóður sólpallur
* 3 svefnherbergi
* Vandað fjölbýlishús byggt 2020
* Frábær staðsetningEIGN SEM ER VERT AÐ SKOÐA!
Nánari upplýsingar veita:
Árni B. Kristjánsson B.A í lögfræði / Lgf í síma nr 616-2694 arni@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Birt stærð samkv. Þjóðskrá Íslands er 115,2 m2. Fasteignamat 2025 er 75.500.000 kr.Íbúðin skiptist í þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, eldhús, stofa/borðstofa, verönd og sérgeymsla í sameign.
Nánari lýsing:
Anddyri er rúmgott með fatahengi og innbyggðum fataskáp. Parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt á gólfi og veggjum að hluta. Gott sturtuhorn, upphengt salerni og handklæðaofn og sérsmíðuð innrétting.
Þvottahús er inn af baðherbergi með innréttingu og ræstivaski. Gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi.
Eldhús er með sérsmíðuðum innréttingum frá AXIS. Tæki frá AEG. Ofn í vinnuhæð og gert ráð fyrir uppþvottavél. Parket á gólfi.
Stofa/Borðstofa er rúmgott alrými með stórum gluggum og útgengi á mjög rúmgóðan pall. Parket á gólfi
Svefnherbergi I er rúmgott með stórum innbyggðum fataskáp. Parket á gólfi.
Svefnherbergi II er bjart og nýtist mjög vel. Innbyggður fataskápur. Parket á gólfi.
Svefnherbergi III er búið er að útbúa í horni alrýmis. Gluggi. Parket á gólfi.
Frá stofu er gengið út á mjög rúmgóðan ca 40 fm pall.Geymsla er í sameign, 9fm.
Lóð: Vel hirt lóð í sameign.
Sérsmíðaðar innréttingar frá AXIS og sér loftskiptikerfi fyrir íbúðina.
Ath. eignin er skráð sem 3 herbergja en er 4ja herbergja í dag þar sem hluti af stofu var breytt í svefnherbergi. Kemur þessi breyting mjög vel út og kemur ekki niður á flæði eignarinnar.
Í sameign er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Falleg íbúð í vönduðu nýlegu fjölbýli staðsett örstutt frá útivistarperlu. Stutt er í leik- og grunnskóla, útivist og alla helstu þjónustu. Nýbúið er að opna stóra og glæsilega Bónus verslun í göngufæri frá íbúðinni.Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.