VALBORG fasteignasala kynnir í einkasölu Langahraun 4, Hveragerði.
Falleg íbúð með bílskúr í fjögurra íbúða raðhúsi á frábærum stað.
Eignin er samtals 131,7 m² að stærð og skiptist í íbúð 85,7m² og bílskúr 46m² samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Íbúðin telur forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu, eldhús, stofu og bílskúr.
Íbúðin er nýlegu, skemmtilegu hverfi í Kambalandi, efst í bæjarfélaginu.
** Fasteignamat næsta árs verður kr. 88.250.000 **
Lýsing eignar:
Forstofa: komið er inn í flísalagða forstofu. Þar er fataskápur..
Stofa: eldhús og stofa eru saman í opnu og björtu rými.
Eldhús: er opið inní stofu. Þar eru efri og neðri skápar, bakarofn, innbyggð uppþvottavél og ísskápur.
Baðherbergi: er flísalagt, upphengt wc, "walk-in sturta", handklæðaofn og innrétting.
Þvottahús: pláss fyrir þvottavél og þurkara í vinnuhæð í góðri innréttingu. Inngengt inn í bílskúr.
Svefnherbergin eru tvö/þrjú:
Hjónaherbergi er snýr út í garð. Fjórfaldur fataskápur.
Svefnherbergi: gengið er í herbergið frá forstofunni. Einfaldur fataskápur.
Geymsla inn af bílskúr: Hægt að nýta sem þriðja herbergið.
Gólfhiti er í eigninni, harðparket á gólfum en flísar á votrýmum, hvítar innihurðar.
Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.