Fasteignaleitin
Skráð 18. ágúst 2026

Túngata 42

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
222.9 m2
9 Herb.
6 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
179.900.000 kr.
Fermetraverð
807.088 kr./m2
Fasteignamat
166.250.000 kr.
Brunabótamat
111.500.000 kr.
Mynd af Hera Björk Þórhallsdóttir
Hera Björk Þórhallsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1920
Garður
Bílskúr
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2002101
Landnúmer
100647
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta / ekki vitað
Raflagnir
Endurnýjað að hluta / ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Endurnýjað ca.1995-2000
Þak
Járn endurn. ca.1995-2000
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Nei
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
** HÉR GETUR ÞÚ BÓKAÐ SKOÐUN Á EIGNINA **

RE/MAX, HERA BJÖRK Lgf. (774-1477 / herabjork@remax.is) & SALVÖR ÞÓRA Lgf. (844-1421 / salvor@remax.is) kynna: 
Túngata 42 er fallegt og virðulegt timburhús á steyptum grunni með mikla möguleika, samtals 222,9 m² að stærð, þar af 34,4 m² bílskúr. Húsið stendur á 451,2 m² gróinni eignarlóð með skjólgóðum garði og góðri aðkomu.


Eignin býður upp á rúmgóðar vistarverur á þremur hæðum, fjölbreytt skipulag og mikla möguleika fyrir fjölskyldu sem vill skapa sér einstakt heimili í einu af rótgrónustu hverfum Reykjavíkur. Innra byrði hússins ber að hluta merki aldurs og gefur nýjum eigendum tækifæri til að endurnýja og laga húsnæðið að eigin þörfum og smekk, um leið og haldið er í sérstakan karakter.

** Eignin verður eingöngu sýnd í einkasýningu - SMELLIR HÉR fyrir ítarlegri upplýhsingar/bókum í skoðun  **

Helstu kostir:
  • 222,9 m² einbýlishús, þar af 34,4 m² bílskúr.
  • 451,2 m² eignarlóð með grónum og skjólgóðum garði.
  • Reisulegt timburhús með sögulegum karakter og hlýlegu yfirbragði.
  • Fjölbreytt skipulag á þremur hæðum með mörgum herbergjum og stofurýmum.
  • Rúmgóður bílskúr, vinnuaðstaða og góð bílastæði á lóð.
  • Miklir möguleikar til að móta glæsilegt fjölskylduheimili til framtíðar.
** SMELLTU HÉR til að nálgast EIGNAMÖPPU með upplýsingum um eignina **

Nánar um eign:
Túngata 42 er skráð byggð árið 1920. Samkvæmt upplýsingum frá seljendum hafa fundist vísbendingar um að elsti hluti hússins kunni að vera frá árinu 1896, þegar gatan hét Landakotsstígur. Húsið var áður þrjár íbúðir en var síðar sameinað í eitt fjölskylduhús. Bílskúrinn var byggður á níunda áratug síðustu aldar.
Húsið hefur varðveitt ýmis upprunaleg og eldri einkenni, meðal annars gegnheilar viðarhurðir, sérsmíðaðar innréttingar og hlýlegt yfirbragð. Skipulagið býður upp á áhugaverða möguleika fyrir fjölskyldulíf, heimavinnu, gestaaðstöðu og mismunandi þarfir fjölskyldumeðlima.

Nánari lýsing:
1. hæð – miðhæð:
Gengið er inn á miðhæð hússins þar sem eru stofa, borðstofa, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi. Stofa og borðstofa tengjast með tvöföldum hurðum og stórir suðurgluggar veita góða birtu. Sérsmíðaðar viðarinnréttingar, innbyggðar hillur og eikarhurðir setja svip sinn á hæðina. Gólfefni og yfirborð eru að mestu frá eldri endurbótum.
2. hæð – efri hæð:
Björt og rúmgóð hæð með stofu, eldhúsi, tveimur svefnherbergjum og baðherbergi. Hæðin býður upp á fjölbreytta möguleika, meðal annars fyrir svefnherbergi fjölskyldunnar, sjónvarpsstofu eða vinnuaðstöðu. Parket á gólfum og eldri viðarinnréttingar.
Kjallari:
Forstofa, tvö herbergi, miðrými með skápum, baðherbergi og tvær geymslur. Tengi fyrir eldhúskrók er í öðru herberginu. Rýmin geta meðal annars hentað fyrir unglinga, gesti, tómstundir eða heimavinnu, allt eftir þörfum nýrra eigenda.
Bílskúr:
Rúmgóður, 34,4 m² bílskúr með vinnuaðstöðu inn af. Góð aðkoma og rúmgóð innkeyrsla. Hentar vel fyrir bílageymslu, verkstæði, áhugamál eða viðbótargeymslu.
Lóð og garður:
Einn helsti kostur eignarinnar er 451,2 m² eignarlóðin. Gróinn og skjólgóður garður skapar notalegt umhverfi fyrir fjölskyldulíf, útiveru og samveru. Eigin innkeyrsla og bílskúr auka enn á þægindin.
Framkvæmda- og viðhaldssaga 1966–2026:
- Töluvert viðhald og endurbætur hafa verið framkvæmdar á húsinu í gegnum tíðina. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum og upplýsingum frá eigendum má meðal annars nefna:
- Bárujárn á þaki endurnýjað á fyrri árum og húsið einangrað og klætt að hluta.
- Gluggar endurnýjaðir með tvöföldu gleri á fyrri árum.
- Raflagnir og rafmagnstafla endurnýjuð ásamt ýmsum breytingum innanhúss.
- Eldhús- og baðinnréttingar endurnýjaðar og lóð endurbætt á fyrri árum.
- Bílskúr byggður á níunda áratugnum.
- Rafmagnshiti settur í tröppur 1990 og tröppur endurnýjaðar 2023.
- Salerni í risi endurnýjað 2023.
- Bárujárn á hliðum húss og gluggar máluð að utan 2024.
- Ljósleiðari lagður inn 2024.
- Hitaveiturör frá brunni að húsi og inntakskrani endurnýjuð af Veitum 2025.
- Kjallaragluggar og hluti útveggja málaðir 2025.
- Tveir nýir mælar settir upp veturinn 2025–2026 og nýr ofn í geymslu bílskúrs 2026.

Þótt ýmsar endurbætur hafi verið framkvæmdar á húsinu í gegnum tíðina eru innréttingar, yfirborð og hluti innviða komnir til ára sinna. Eignin býður því upp á tækifæri til frekari endurnýjunar og nútímavæðingar, þar sem nýir eigendur geta skapað heimili eftir eigin hugmyndum og þörfum.
Kaupendur eru hvattir til að kynna sér ástand eignarinnar vel og leita aðstoðar fagaðila við skoðun eftir því sem við á.

SMELLTU HÉR - skoða 3D af MIÐHÆÐ 
SMELLTU HÉR - skoða 3D af EFRI HÆÐ
SMELLTU HÉR - skoða 3D af KJALLARA
SMELLTU HÉR - skoða 3D af BÍLSKÚR

Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veita:
     Hera Björk, löggiltur fasteignasali í síma 774-1477 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið herabjork@remax.is
     Salvör Þóra, löggiltur fasteignasali í síma 844-1421 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið salvor@remax.is



-----------------------------------------------------------------
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
_________________________________

Ertu í fasteignahugleiðingum?
Við höfum starfað við fasteignasölu samanlagt í yfir 19 ár. 
Við leggjum okkur fram um að veita persónulega og góða þjónustu, viðhalda góðu upplýsingaflæði og vanda vinnubrögð fyrir seljendur og kaupendur. Hjá okkur færðu frítt sölumat og upplýsingar um ferlið án allra skuldbindinga. Hafðu samband í dag!
- Hera Björk, lgf í síma 774-1477 eða herabjork@remax.is
- Salvör Þóra, lgf í síma 844-1421 eða salvor@remax.i
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1985
34.4 m2
Fasteignanúmer
2002101
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
16.600.000 kr.

Myndir (43)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Suðurgata 100
3D Sýn
Bílskúr
Skoða eignina Suðurgata 100
Suðurgata 100
102 Reykjavík
201,3 m2
Einbýlishús
837
894 þ.kr./m2
179.900.000 kr.
Skoða eignina Tjarnarstígur 9
Bílskúr
Opið hús:18. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Tjarnarstígur 9
Tjarnarstígur 9
825 Stokkseyri
229,8 m2
Einbýlishús
412
478 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Nesvegur 55
Efsta hæð
Opið hús:18. okt. kl 13:00-13:30
Skoða eignina Nesvegur 55
Nesvegur 55
107 Reykjavík
114,8 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
522
945 þ.kr./m2
108.500.000 kr.
Skoða eignina Norðurvangur 38
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Hleðslustöð
Opið hús:15. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Norðurvangur 38
Norðurvangur 38
220 Hafnarfjörður
201,7 m2
Einbýlishús
513
768 þ.kr./m2
154.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin