Miklaborg kynnir: Bjarta og fallega 4ra herbergja endaíbúð með aukinni lofthæð og glugga á þrjá vegu, á 2. hæð við Leifsgötu í Reykjavík. Íbúðin skiptist í forstofu, hol, þrjú svefnherbergi, fataherb./geymslu, stofu, eldhús og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Geymsla og sameiginlegt þvottahús á jarðhæð auk geymslurýmis í risi.
Allar nánari upplýsingar veitir Kristín Pétursdóttir, löggiltur fasteignasali, s.824-1965, kristin@miklaborg.is
Nánari lýsing: Komið er inn á parketlagt hol með skápum. Barnaherbergin eru tvö, bæði með parketi. Hjónaherbergið er bjart og rúmgott með fataskáp og parketi. Rúmgott eldhús er með nýlegri innréttingu, eldhústækjum með stáláferð og innbyggðri uppþvottavél. Viðarborðplata er á innréttingu. Stofa og eldhús eru samliggjandi en úr stofunni er gengið út á suðvestursvalir sem snúa út í sameiginlegan bakgarð. Parket er bæði á eldhúsi og stofu. Baðherbergið er með flísum á gólfi og veggjum að hluta, vegghengdu salerni, rúmgóðri sturtu og glugga. Á baðherberginu er tengt fyrir þvottavél og þurrkara. Geymsla er á jarðhæð, samnýtt með íbúðum jarðhæðar, einnig er sameiginlegt geymslurými í risi með einni annarri íbúð. Aukin lofthæð er í allri íbúðinni, 2.70 cm. og fallegir vegglistar og rósettur setja mikinn svip á eignina.
Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð á undanförnum árum, að sögn seljanda: Skipt hefur verið um glugga og gler í allri íbúðinni og eldhús og baðherbergi endurnýjuð sem og ofnar og gólfefni. Sömuleiðs raflagnir og tafla fyrir íbúðina ásamt rafmagnstöflu fyrir húsið og rafmagnsinntak. Nýtt inntak fyrir vatn og ljósleiðara. Sameign er nýmáluð.
Falleg eign við rólega og mjög vinsæla einstefnugötu í miðbæum. Stutt er í alla helstu þjónustu, sund ofl.
Allar nánari upplýsingar veitir: Kristín Pétursdóttir, löggiltur fasteignasali, s:824-1965, kristin@miklaborg.is
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 08/01/2021 | 51.450.000 kr. | 55.000.000 kr. | 96.9 m2 | 567.595 kr. | Já |
| 03/10/2015 | 32.050.000 kr. | 35.000.000 kr. | 96.9 m2 | 361.197 kr. | Já |
| 15/07/2008 | 21.430.000 kr. | 24.200.000 kr. | 96.9 m2 | 249.742 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
603 | 78,5 | 58,9 | ||
101 | 99,9 | 128,9 | ||
101 | 107,6 | 109,7 | ||
101 | 100,4 | 105,9 | ||
109 | 98,1 | 72 | ||
101 | 91,5 | 107,4 |