FS fasteignir – 571-9992Klettagerði 2, 600 AkureyriSkemmtilegt og vel við haldið 6 herbergja einbýlishús á frábærum stað á Brekkunni, Akureyri. Eignin er samtals 193,3 m
2 með 29,1 m
2 bílskúr.
Eignin skiptist í tvær hæðir, jarðhæð er skráð 135,6 m
2 skv. fasteignaskrá HMS, þar er anddyri, gestasnyrting, hol/gangur, eldhús, þvottahús/bakdyrainngangur og geymsla, stofa, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Efri hæð er skráð 28,6 m
2, þar er vinnurými og eitt svefnherbergi. Úti er steypt stétt með snjóbræðslu, heitum og köldum potti og útisturtu, geymsluskúr um 10 m
2 og 29,1 m
2 bílskúr.
Nánari lýsing:- Anddyri er með ljósum flísum á gólfi og innbyggðum fataskáp.
- Gestasnyrting er inn af anddyri, þar eru ljósar flísar á gólfi, hvít innrétting og upphengt salerni.
- Hol/gangur er með ljósum flísum á gólfi, stórir gluggar til vesturs og svalahurð.
- Eldhús er með ljósum flísum á gólfi og ljósum mosaik flísum á milli bekkjar og skápa, nýleg falleg innrétting með dökkri bekkplötu. Stálvaskur, bakaraofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél og tvöfaldur ísskápur sem fylgja með við sölu eignar. Í borðkrók er sérsniðið eldhúsborð sem fylgir með við sölu eignarinnar.
- Þvottahús og bakdyrainngangur er inn af eldhúsi, þar er nýleg ljós innrétting með dökkri bekkplötu og ljósar mosaik flísar í milli bekkjar og skápa, ljósar flísar á gólfi. Stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
- Geymsla er inn af þvottahúsi, þar eru flísar á gólfi, geymslan er rúmgóð með ljósri innréttingu.
- Stofa er inn af holi, þar er harðparket á gólfi, stofan er rúmgóð og björt með stórum gluggum til suðurs.
- Hjónaherbergið er með harðparketi á gólfi, nýlegur opinn fataskápur og gluggi til suðurs.
- Svefnherbergin hin eru með harðparketi á gólfi, nýlegir opnir fataskápar og gluggar til suðurs.
- Baðherbergi er með ljósum flísum á gólfi, hvít innrétting, walk-in sturta, upphengt salerni og handklæðaofn. Gólfsíðir skýjaðir gluggar eru meðfram útvegg baðherbergisins.
- Vinnurými er uppi á annari hæð, þar er harðparket á gólfi og fallegur gegnheill viðar panill á veggjum og lofti.
- Svefnherbergið á annari hæð er með harðparketi á gólfi, nýlegir skápar, gegnheill viðar panil á veggjum og lofti.
- Útisvæði er með útisturtu, heitum og köldum potti á steyptri stétt með snjóbræðslu.
- Geymsluskúr er upphitaður með góðu geymsluplássi.
- Bílskúr er með málað gólf, rafdrifin innkeyrsluhurð og milliloft yfir hálfu rýminu. Bílskúrinn er skv. fasteignaskrá HMS skráður 29,1 m
2.
Framkvæmdir síðustu ára:2025: Einangrun undir gluggum endurnýjuð og nýir fataskápar settir í öll herbergi.
2023: Ný rafmagnstafla, 3 fasa rafmagn tengt, bílahleðslustöð sett upp og loft bílskúrs einangrað.
2022: Hús og bílskúr máluð að utan. Nýjar útidyrahurðir og bílskúrshurð.
2021: Ný verönd með steyptri stétt, hitalögnum, skjólvegg og pottum. Geymsluskúr og útisturta byggð.
2019: Hitaþræðir með snjall hitastýringu settir í þakrennur bæði hús og bílskúr.
2018: Lagfæringar á veggjum og flísum á baðherbergi, glerplata sett á útvegg sturtu, dren við hús og bílskúr, nýtt bílaplan með hita og endurnýjun lagna undir húsi og í götu.
2017: Parket og listar endurnýjað á efri hæð, skipt um gler í öllum gluggum og afrennsli sett í gólf bílskúrs.
2016: Ný eldúsinnrétting og tæki. Þakskegg endurnýjað og sett upp lýsing á húsi og bílskúr.
2015: Lagnir lagfærðar í þvottahúsi, eldhús stækkað inn í þvottahús, efri hæð skipulögð í svefnherbergi og opið rými.
2014: Baðherbergin endurnýjuð, flestir ofnar endurnýjaðir.
Annað:- Ljósleiðari tengdur og tilbúinn til notkunar.
- Gólfhiti inni á baðherbergi.
- Gróinn garður með fallegum trjám og klöpp sem setur skemmtilegan svip á lóðina stórt bílastæði með snjóbræðslu.
- Frábær staðsetning, stutt í skóla og aðra þjónustu, fallegt útsýni.
- Núverandi skipulag er ekki í samræmi við teikningar.
- Eignin er í einkasölu hjá FS fasteignir.
Nánari upplýsingar í síma 571-9992 eða fsfasteignir@fsfasteignir.isSkoðunarskylda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. FS fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
FS fasteignir ehf. - Glerárgata 36, 3. hæð - 571-9992 - www.fsfasteignir.is
Friðrik Sigþórsson, löggiltur fasteignasali, s: 694-4220, fridrik@fsfasteignir.is
Svala Jónsdóttir, löggiltur fasteignasali, s: 663-5260, svala@fsfasteignir.is
Sigurpáll Gunnarsson, nemi til löggildingar fasteignasala, s: 618-6126, sigurpall@fsfasteignir.is
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá verðmat og ráðgjöf.
Fylgstu með nýjustu eignunum til sölu hjá okkur á facebook og instagram.