Glæsileg fjögurra til fimm herbergja endaíbúð á 2. hæð ásamt stæði í bílageymslu í nýlegu lyftuhúsi við Kuggavog 15 í Reykjavík. Aðeins þrjár íbúðir eru á hæðinni. Mikil lofthæð er í eigninni. Þrjú rúmgóð svefnherbergi, tvær samliggjandi stofur með gluggum í þrjár áttir. Eldhús og stofur eru í opnu, björtu rými með útgengi á suðaustursvalir. Hjónasvíta með sér baðherbergi. Bæði baðherbergi íbúðar eru með opnanlegum gluggum. Sameign er mjög snyrtileg. Falleg eign í nýlegu hverfi Vogabyggðar þaðan sem stutt er í alla helstu þjónustu og verslanir. Fallegar gönguleiðir í næsta nágrenni.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 129,8fm. og þar af er geymsla 10,9fm. Bílastæði er ekki inn í fermetratölu íbúðar. Nánar um eignina: Forstofa rúmgóð með góðu skápaplássi og parket á gólfi.
Eldhús með hvítri innréttingu með góðu skápaplássi, flísar á milli skápa, eldunareyju, ofn í vinnuhæð, gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingunni og parket á gólfi. Eldhús og stofa eru í opnu rými með mikillri lofthæð.
Stofur eru tvær og eru þær samliggjandi í opnu og björtu rými, parket á gólfi. Útgengt er út á góðar suðaustursvalir úr borðstofunni.
Hjónaherbergi með góðu skápaplássi og parket á gólfi.
Sérbaðherbergi er inn af hjónaherberginu.
Baðherbergi inn af hjónaherbergi með hvít innrétting með handlaug, sturta með sturtugleri, handlæðaofn, upphengt salerni, opnanlegur gluggi og flísar á gólfi og stærstum hluta veggja.
Svefnherbergi 2 með fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi 3 með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi með hvítri innréttingu, innangeng sturta, handklæðaofn, upphengt salerni, opnanlegur gluggi gólfhiti. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara er á baðherbergi, skápar fyrir ofan vélar.
Sérgeymsla í sameign ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Sérstæði í bílageymslu fylgir eigninni.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignsali í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is