Trausti fasteignasala kynnir í einkasölu
HLÍÐARHJALLI 61, 200 Kópavogi. Falleg tveggja herberbergja íbúð á fyrstu hæð. Hún skiptist í anddyri, stofu, eldhús, baðherbergi og eitt svefnherbergi. Sérgeymsla á jarðhæð ásamt sameiginlegu þvottahúsi, þurrkherbergi, hjóla- og vagnageymslu. Tilvalin eign sem fyrstu kaup!Eignin er skráð alls 65,3 fm. samkvæmt HMS. , byggt árið 1988. Smelltu hér til að sækja söluyfirlitAllar nánari upplýsingar veita:
Auðun Ólafsson, löggiltur fasteignasali,
s. 894-1976 /
audun@trausti.isAnton Y. Sakornram, aðstoðarmaður fasteignasala,
s. 779-5463 /
anton@trausti.isBóka verðmatwww.trausti.isTrausti á FacebookNánari lýsing:Anddyri: Með fataskáp sem ná upp í loft.
Stofa: Björt með fallegu útsýni til suðurs og rúmar vel bæði borðstofu og setustofu.
Eldhús: Með snyrtilegri U-laga innréttingu, borðkrók við glugga og útgengi á svalir.
Svefnherbergi: Bjart og rúmgott með góðum fataskáp sem ná upp í loft.
Baðherbergi: Flísalagt með hvítri innréttingu, sturtu og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Svalir: Skjólgóðar suðursvalir með fallegu útsýni.
- Dúkur á gólfi í öllum rýmum íbúðar nema baðherbergi, þar eru flísar. -
Sérgeymsla: Á jarðhæð. Stærð 4,9 fm. (ekki inn í fermetratölu íbúðar)
Þvottahús/Þurrkherbergi: Sameiginlegt, á jarðhæð.
Hjóla- og vagnageymsla: Sameiginlegt, á jarðhæð.
Staðsetning eignarinnar er afar miðsvæðis og eftirsótt. Hér er stutt í alla helstu þjónustu, verslanir og skólar í næsta göngufæri. Fyrir útivistarfólk er staðsetningin tilvalin, en fallegar göngu- og hjólaleiðir um Fossvog, Kópavogs- og Elliðaárdal tengja íbúabyggðina við náttúruna á dýrmætan hátt.