Tryggvagata 23 –
íbúð 302, 101 Reykjavík.
Vönduð og vel skipulögð
2ja herbergja íbúð við Tryggvagötu 23 á
Hafnartorgi í miðborg Reykjavíkur. Íbúðin er skráð
80,8 fm og býður upp á svefnherbergi, opið alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, svalir, baðherbergi og þvottarými. Íbúðinni fylgir 6,9 fm sérgeymsla í kjallara.
Hér er um að ræða vandaða íbúð á eftirsóttum stað þar sem stutt er í verslun, þjónustu, veitingastaði og mannlíf miðborgarinnar.
Skráð stærð
80,8 fm.Helstu atriði- 2ja herbergja íbúð við Hafnartorg.
- Opið alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi með eyju.
- Svefnherbergi með góðum fataskápum.
- Sérgeymsla í kjallara og inngangur bæði frá göngugötu og úr bílageymslu Hafnartorgs.
Nánari upplýsingar veita:Þorgeir Símonarsson Lgf. S: 696-6580 eða thorgeir@palssonfasteignasala.is
Ómar Hjaltason astmf. S:778-9090 eða omar@palssonfasteignasala.is
Nánari lýsingVið
Tryggvagötu 23 er að finna þessa vönduðu og vel skipulögðu
2ja herbergja íbúð á einum besta stað miðborgarinnar. Komið er inn í anddyri með harðparketi á gólfi og góðum fataskápum. Þaðan tekur við opið alrými þar sem eldhús, stofa og borðstofa tengjast.
Stofan er með gluggum í tvær áttir og rýmið nýtist vel bæði sem setustofa og borðstofa.
Eldhúsið er með vandaðri innréttingu frá Noblessa, eyju og borðplötu úr Meganite Carrara. Eldhústæki eru frá Siemens og í eldhúsi er m.a. innbyggður ísskápur, uppþvottavél og vínkælir.
Svefnherbergið er rúmgott með harðparketi á gólfi og góðum fataskápum.
Baðherbergið er flísalagt með fallegri innréttingu, upphengdu salerni og sturtu, auk þess sem þvottarými er inn af baðherbergi.
Íbúðin er vönduð að frágangi með
aukinni lofthæð, háum innihurðum, myndavéladyrasíma og ljósastýrikerfi frá GIRA. Íbúðinni fylgir 6,9 fm sérgeymsla í kjallara. Inngangur er frá göngugötu og einnig er aðgengi úr bílageymslu Hafnartorgs.
Staðsetningin er góð þar sem verslanir, veitingastaðir, menning, þjónusta og miðborgarlíf eru í næsta nágrenni.
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.