RE/MAX og Bára Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali kynna: HAFNARBRAUT 12A, íbúð merkt 110, SÉRINNGANGUR Á JARÐHÆÐ, SÉRMERKT BÍLASTÆÐI BEINT FYRIR UTAN, PALLUR MEÐ BEINU ÚTGENGI Í GARÐ.
Björt og falleg tveggja til þriggja herbergja íbúð á jarðhæð með rúmgóðum palli, bílastæði beint fyrir utan með rafhleðslustöð, geymslu innan íbúðar (sem í dag er nýtt sem svefnherbergi) og virkilega snyrtilegum garði í sameign með leiktæki fyrir börn. Rólegt hverfi með fallegum gönguleiðum í allar áttir þar sem stutt er í skóla, leikskóla, hið vinsæla Sky lagoon og alla helstu þjónustu.
Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar
78,5 m², íbúð merkt 01.0110 og fnr. 221-9281. Sérmerkt bílastæði með rafhleðslustöð fylgir sem er staðsett beint fyrir framan inngang eignarinnar.
Í sameigninni er hjóla- og vagnageymsla. Húsinu tilheyrir snyrtileg sameign með lyftu og fallegur afgirrtur garður með leiktækjum.
Sækja söluyfirlit HÉRAllar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir:Bára Jónsdóttir
Löggiltur fasteignasali
RE/MAX senter
Skeifan 17 / 108 Reykjavík
E-mail: bara@remax.is
Sími: 773-7404 Nánari lýsing: Eignin skiptist í: Forstofu, eldhús og stofu/borðstofu, pallur með beinu útgengi út í garð, baðherbergi, svefnherbergi 1, svefnherbergi 2/geymsla og bílastæði með rafhleðslustöð.
- Gengið er inn um sérinngang á jarðhæð.
- Forstofa með góðum fataskápi og parketi á gólfi.
- Eldhúsið er í sameiginlegu rými með stofu/borðstofu. Parket á gólfi og allar innréttingar eru sprautulakkaðar hvítar með silkimattri áferð. Allar skúffur eru með mjúklokun. Tengi fyrir uppþvottavél.
- Stofan er opin og björt með partketi á gólfi og stórum gluggum. Gengið er út á mjög rúmgóðan pall með fallegu útsýni yfir sameiginlegan garð. Hægt að ganga beint út frá pallinum út í garðinn þar sem eru leiktæki fyrir börn.
- Baðherbergið er flísalagt með upphengdu salerni og góðri innréttingu. Hiti í gólfi og þurrkofn. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
- Svefnherbergið er mjög rúmgott með partketi á gólfi og góðu skápaplássi.
- Svefnherbergi ll/geymslan er með glugga með opnanlegu fagi og í dag nýtt sem hjónaherbergi.
- Sérmerkt bílastæði með rafhleðslustöð fylgir sem er staðsett beint fyrir framan inngang eignarinnar.
- Sameiginleg vagna- og hjólageymsla.
Umsögn frá seljanda: "Íbúðin okkar hefur verið hið fullkomna fyrsta heimili og hér eigum við ótrúlega margar dýrmætar minningar. Einn af stærstu kostunum við íbúðina er sérinngangur, bílastæðið beint fyrir framan og pallurinn á jarðhæð, með aðgengi beint út í garð. Það er algjör draumur fyrir fólk með barn og eða dýraeigendur.
Blokkirnar eru mjög fjölskylduvænar, nágrannarnir frábærir og mikil samstaða í öllum.
Í kring eru virkilega fallegar göngu- og hlaupaleiðir meðfram sjónum í báðar áttir sem hafa nýst okkur vel. Hér er stutt í alla helstu þjónustu Kópavogslaug, veitingastaði, Brikk bakarí, apótek, matvöruverslun, Sky Lagoon og bókasafn ásamt því að vera nálægt stofnæðum - Mjög miðsvæðis.
Svo styttist óðum í nýju brúnna yfir í Nauthólsvíkina, sem mun gera svæðið enn aðgengilegra."ERT ÞÚ Í SÖLU HUGLEIÐINGUM? Hafðu samband HÉR fyrir FRÍTT og skuldbindingarlaust söluverðmat á þína eign.Fylgdu mér á samfélagsmiðlum:
Facebook síðan mínInstagram síðan mínHeimasíða RE/MAXUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.