LIND fasteignasala og Lára Þyri, löggiltur fasteignasali, kynna bjarta og vel skipulagða þriggja til fjögurra herbergja íbúð á 2. hæð ásamt stæði í bílageymslu í nýlegu fjölbýli við Sunnusmára 21 í Kópavogi. Stórt alrými, tvö rúmgóð svefnherbergi, þvottahús innan íbúðar. Vandaðar innréttingar, myndavéladyrasími, suðursvalir. Stutt í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla. Smáralind, Smáratorg og íþróttasvæðið við Fífuna eru í göngufæri. Íbúð 207:Forstofa: Parket á gólfi, fataskápur frá Axis.
Eldhús: Hvít innrétting frá Axis með góðu skápaplássi, ofn og spanhelluborð frá Gorenje, innbyggður ísskápur og uppþvottavél, parket á gólfi.
Stofa: Rúmgóð og björt, parket á gólfi, útgengi á suðursvalir.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með fataskápum frá Axis, parket á gólfum. Möguleiki er á að bæta þriðja svefnherberginu við á kostnað stofu.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja, innrétting með handlaug. Sturta með sturtugleri, handklæðaofn, gólfhiti.
Þvottahús er innan íbúðar. Flísar á gólfi, innrétting með skolvaski.
Sérgeymsla (5 fm) í sameign ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Eigninni fylgir sérmerkt bílastæði í bílgeymslu merkt B36. Komin er hleðslustöð við bílastæðið.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Lára Þyri Eggertsdóttir, löggiltur fasteignasali/B.A. í lögfræði í síma 899-3335 eða lara@fastlind.is
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.