Hraunhamar fasteignasala og Helgi Jón Harðarson sölustjóri s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is kynna: Sérlega fallega og bjarta 4-5 herbergja 111,2 fm endaíbúð á 3. hæð (efstu) í 5-íbúða húsi á þessum vinsæla og barnvæna stað í Lindunum Kópavogi. Frábært útsýni og staðsetning. Tvö ómerkt bílastæði fylgja eigninni. Suðvestur svalir. Falleg umgjörð og fallegt hús. Öll helsta þjónusta í göngufæri, þar á meðal sundlaug, verslun, bókasafn, leikvöllur og fleira og aðeins 2 mín. ganga í Lindaskóla. Eignin skiptist m.a. þannig: Góð
forstofa með skáp,
hol/sjónvarp, björt og falleg
stofa/borðstofa (hátt til lofts) með útgang á rúmgóðar
sv-svalirnar, fallegt bjart
eldhús með ljósum innréttingum og góðum tækjum, borðkrókur. Inn af eldhúsi er síðan gott
þvottaherbergi með glugga. Svefnálma: Rúmgott hjónaherbergi með góðu skápaplássi og tvö góð
barnaherbergi með skáp. Rúmgott
baðherbergi með bæði sturtuklefa og baðkari, ljós innrétting, flísar í hólf og gólf, gluggi.
Harðparket á gólfum. Húsið telur 5 íbúðir í þessu fallega vel umgengna húsi. Rúmgóð
sérgeymsla í sameign en sameign er snyrtileg og til fyrirmyndar.
Lóðin er falleg og rúmgóð með góðu aðgengi að framan og aftanverðu. Trampolín í eigu hússins er á baklóðinni.
Gatan er breið og góð og yfirleitt næg bílastæði.
Hátt til lofts og innfelld lýsing á köflum.
Gluggar í þrjár áttir.
Skv. seljanda hafa eftirfarandi framkvæmdir átt sér stað s.l. ár:2025: Skipt um þaktúður.
2025: Nýtt myndavéladyrasímakerfi sem tengist við síma.
2025: Nýjar flísar í þvottahús
2020: Baðherbergi endurnýjað, upphengt salerni.
2020: Nýtt harðparket
2020: Nýir fataskápar
2020: Ný stormjárn í öllum gluggum nema þvottahúsi
2017: Húsið málað og sprunguviðgert
Þetta er mjög áhugaverð eign á þessum vinsæla stað sem vert er að skoða.
Nánari uppl gefur Helgi Jón Harðarson sölustjóri s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is og
Glódís Helgadóttir lgf. s. 659-0510 glodis@hraunhamar.isSkoðunarskylda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is