Fasteignaleitin
Skráð 18. júlí 2026

Holtsgata 45

EinbýlishúsSuðurnes/Sandgerði-245
151.7 m2
4 Herb.
Verð
83.900.000 kr.
Fermetraverð
553.065 kr./m2
Fasteignamat
77.000.000 kr.
Brunabótamat
85.450.000 kr.
Mynd af Elín Frímannsdóttir
Elín Frímannsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2005
Pallur
Heitur pottur
Bílskúr
Á einni hæð
Fasteignanúmer
2282773
Landnúmer
194896
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Leigulóð
Byggingarstig
4 - Fokheld bygging
Gallar
Sprunga í innra gleri í einum glugga í stofunni.
ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina Holtsgata 45,  birt stærð 151.7 fm.

Fallegt og vel skipulagt einbýlishús á vinsælum stað í Sandgerði, Suðurnesjabæ. Eignin er skráð 151.7 m2 þar af er innangengur bílskúr sem búið er að útbúa að hluta til herbergi. Fjögur svefnherbergi eru í húsinu. Eignin skiptist í forstofu, þvottahús, bílskúr ( Bílskúr sem hefur verið útbúið herbergi að hluta ásamt góðu geymslulofti yfir hann.) holt,  eldhús, stofa, borðstofa og sjónvarpsstofa eru í opnu rými ásamt þrjú svefnherbergi innan íbúðar. Gengið er út á rúmgóðan suðursólpall frá stofu, þar er heitapottur, úti grill og skjólveggir umhverfis pall. Baðherbergi og þvottahús í sér rýmum. Hiti er í gólfum. Innfelld lýsing í loftum.

Falleg og vel skipulögð eign sem hefur verið endurnýjuð að hluta.

Nánari upplýsingar og skoðunarbókanir veitir:
Páll Þorbjörnsson löggiltur fasteignasali í síma 560-5501 og á netfanginu pall@allt.is


** Húsið er byggt af Sparra ehf.**
** 4 svefnherbergi**
** Skipt um baðkar og innréttingu á baðherbergi árið 2017**
** Steypt innkeyrsla árið 2016**
** Ný eldhúsinnrétting árið 2017**
** Nýtt harðparket frá Byko árið 2017**
** Nýjar innihurðar frá Byko árið 2017**
** 7,5 m2 útigeymsla frá Byko árið 2018**
** Hitaveituskel frá Normex árið 2019**
** Lóð afgirt 2020-2021**

Nánari lýsing:
Komið er inn í bjarta forstofu með flísum á gólfi og góðum klæðaskáp. 
Eldhús:
hefur hvíta innréttingu og harðparket á gólfi.
Stofa: er opin, við borðstofu eldhús og sjónvarpsaðstöðu. Fallegt harðparket á alrými. Útgengt á stóran sólpall með heitapotti og úti arinn.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni, falleg hvít vaskinnrétting. 
4 svefnherbergi: Fjögur góð svefnherbergi eru í húsinu, þau hafa harð parket á gólfum. Klæðaskápar/ fataherbergi eru í þremur þeirra. Fjórða herbergi er hluti af bílskúr í dag. 
Þvottahús: er rúmgott með tengjum fyrir þvottavél, þurrkara og hvíta innréttingu.
Bílskúr: er innangengur frá húsi. Geymsluloft í enda skúrs. Búið er að útbúa herbergi í hluta skúrsins en auðvelt er að breyta því til baka.
Pallur: Snýr í suður, afarr úmgóður og skjólgóður, heitur pottur.
Garður: Garður er gróinn, með útisnúrum ásamt útigeymslu.
Bílastæðaplan: Steypt rúmgott bílastæðaplan.


Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
05/12/201320.650.000 kr.20.000.000 kr.151.7 m2131.839 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2005
26 m2
Fasteignanúmer
2282773
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
10.200.000 kr.

Myndir (38)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ísleifsbúð 17
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Ísleifsbúð 17
Ísleifsbúð 17
815 Þorlákshöfn
153.9 m2
Raðhús
413
528 þ.kr./m2
81.200.000 kr.
Skoða eignina Svölutjörn 63
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Svölutjörn 63
Svölutjörn 63
260 Reykjanesbær
204.4 m2
Einbýlishús
614
Fasteignamat 111.350.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Furudalur 13
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Furudalur 13
Furudalur 13
260 Reykjanesbær
182.3 m2
Einbýlishús
424
634 þ.kr./m2
115.500.000 kr.
Skoða eignina Suðurgata 24
Bílskúr
Efsta hæð
Skoða eignina Suðurgata 24
Suðurgata 24
230 Reykjanesbær
168.3 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
715
415 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin