Eignin er seld með fyrirvara um fjármögnun
Jóhannes E. Levy löggiltur fasteignasali kynnir í einkasölu þriggja herbergja íbúð með bílastæði í sameiginlegri bílgeymslu að
Furugrund 68, Kópavogi.
Íbúðin er á efstu hæð (6.h) og skiptist í anddyri, tvö svefnherbergi, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi og rúmgóðar svalir til austurs og suðurs. Sameiginlegt þvottahús er á hverri hæð. Íbúðinni fylgir sérgeymsla (6A) og í sameign er hjóla- og vagnageymsla. Samkvæmt skráningu HMS er eignin alls 94,9 fm, þar af íbúð (0601) 71,1 fm og stæði í bílgeymslu (08) sem er skráð 23,8 fm.
Íbúðin fór í gegnum miklar endurbætur að innan á árinu 2024 - ný eldhúsinnrétting, allt nýtt á baðherbergi, ný gólfefni, nýmálað, rafmagn allt yfirfarið og nýjir tenglar og rofar. Mikið útsýni til norðurs og austurs.
Forstofuhol með parketi og fataskáp á vinstri hönd þegar komið er inn í íbúðina.
Stofa / Borðstofa er björt með parketi á gólfi og útgengi út á L-laga svalir til austurs og suðurs.
Eldhús með nýrri hvítri innréttingu, gott skápa og vinnupláss, pláss fyrir uppþvottavél, eldhústæki ekki ný, en nýleg, parket á gólfi.
Svefnherbergisgangur með parketi á gólfi.
Hjónaherbergi með parket á gólfi og rúmgóðum fataskáp.
Barnaherbergi með parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með góðri sturtu, opnanlegum glugga, hvít innrétting.
Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús er á hverri hæð fyrir fjórar íbúðir á hverri hæð. Gengið er út úr íbúðinni í lokaðann stigapall þar sem þvottahúsið er í sérherbergi.
Sérgeymsla er í kjallara á geymslugangi.
Sameign: Vagna og hjólageymsla er í sameign.
Bílastæði: Eigninni fylgir merkt bílastæði í bílgeymsluhúsi. Hleðslustöðvar á sameiginlegu bílastæði fyri rafbíla.
Húsfélagið á eina íbúð í eigninni sem er í útleigu þar sem leiguverð fer inni hússjóð. Húsið hefur fengið prýðilegt viðhald undanfarinn ár sbr. húsfélagsgögn, m.a. nýtt þak.
Nánari upplýsingar veitir Jóhannes E. Levy, löggiltur fasteignasali
í síma
7721050 eða
senda tölvupóst