Berglind Hólm lgfs. og RE/MAX kynna: Fallega, björt og vel skipulögð 94,6fm, 4 herbergja íbúð á 2.hæð í nýlegu lyftuhúsi í nýju hverfi sem er vel staðsett á Selfossi..
Húsið er staðsteypt, einangrað að utan og klætt með báruáli og/eða sléttu áli. Gluggar og útihurðar eru úr ál/tré. Íbúðin skiptist í 3 góð svefnherbergi, alrými sem rúmar eldhús, borðstofu og setustofu, rúmgott baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara og góða geymslu. Rúmgóðar svalir eru út frá stofunni. .
Alla nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma
694-4000 eða berglind@remax.is
Nánari lýsing einar:
Að innan skiptist hún í anddyri, þrjú svefnherbergi, stofu, eldhús, baðherbergi og geymsla innan íbúðar sem gæti nýst sem herbergi
Forstofa: Gengið er út frá stigahúsi út á sérinngang af svölum. Þaðan er komið inn í rúmgóða forstofu með vönduðum og fallegum skápum með góðu skápaplássi.
Alrými: Eldhús, borðstofa + setustofa
Eldhús: Eldhús er á einn með vegg efri og neðri skápum. Neðri skápar eru ljósir með dökkri borðplötu og efri skápar eru í dökku brúnbæsuðu eikarútliti. Á gólfi er fallegt grátóna harðparket.
Borðstofa + setustofa: Í opnu rými með eldhúsinu er borðstofan og setustofan. Fallegt grátóna harðparket er á gólfi. Útgengt út á rúmgóðar svalir.
Baðherbergi + þvottaherbergi: Baðherbergið er rúmgott með fallegum gráum flísum á gólfi og á tvo veggi hjá votsvæðum. Sturta er beint á gólf með glerskilrúmi. Innrétting undir vaski er í dökkum brúnbæsuðu eikarútliti og spegil er fyirr ofan vask með hulinni lýsingu. Við hlið innréttingarinnar eru tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
3 x svefnherbergi: Svefnherbergin eru þrjú. Öll herbergin eru með grátóna harðparketi á gólfi og góðum fataskápum í ljósum lit.
Bílastæði eru malbikuð og búið er að koma upp hleðslustöðvum fyrir rafmagnsbíla við bílastæði næst húsinu.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Frábær staðsetning í nýju hverfi þar sem stutt er í leik- og grunnskóla og alla helstu þjónustu.
Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma
694-4000 eða berglind@remax.is