SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEG NÝ ÍBÚÐ Á VINSÆLUM STAÐ* – *LYFTA, UPPHITUÐ SUNDLAUG OG LÍKAMSRÆKT* - *SJÁVARÚTSÝNI* - *GÖNGUFÆRI Á STRÖND, VERSLANIR OG VEITINGASTAÐI* - *STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU*
Nánari upplýsingar:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is Sími 0034 615 112 869
EINSTÖK STAÐSETNING - FRÁBÆR HÖNNUN
3ja herbergja ný íbúð með tveimur baðherbergjum og tvennum svölum. Eignin er vel skipulögð og afhendist fullbúin með húsgögnum. Bæði svefnherbergin eru með fataskápum og útgengi út á svalir, og annað svefnherbergið er með sér baðherbergi. Björt forstofa með skápum. Eignin er ný og afhendist með öllum húsgögnum. Góðir leigumöguleikar í boði. Eigninni fylgir glæsileg sameign, upphituð sundlaug, heitur pottur og líkamsrækt, ásamt sérmerktu stæði á lokaðri lóð.
Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni, t.d. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin, Vistabella og Las Colinas.
Göngufæri er niður á ströndina í La Zenia og Cabo Roig. Einnig er La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin í þægilegu göngufæri.
Um 50 mín. akstursleið frá flugvellinum í Alicante.
Göngufæri í gott úrval veitingastaða og verslana.
Einstakt tækifæri fyrir fólk sem kann og vill njóta lífsins í fallegu umhverfi. Einnig möguleiki á góðum leigutekjum.
Verð 360.000 Evrur (ISK52.000.000) + 10% skattur og ca. 3% kostn. við kaupin.
Gengi 1Evra=145ISK.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.
Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar
www.spanareignir.isKostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.
Eiginleikar: sér garður, einkasundlaug, þakverönd,
Svæði: Costa Blanca, La Zenia,