Guðmundur Þór Júlíusson & Ástþór Reynir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:Lautargata 3, 210 Garðabær. Um er að ræða nýjar og glæsilegar 3-5 herbergja íbúðir í lyftuhúsi með 10 íbúðum. Stutt er í ósnortna náttúru og göngu- og hjólastíga.
Íbúðirnar skilast fullbúnar með gólfefnum, ásamt innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Sér þvottahús í öllum íbúðum. Aðalverktaki, Gunnar Bjarnasson ehf.
Bókið skoðun hjá Gumma Júl í síma 858-7410 eða gj@remax.is eða í Ástþór Reynir í síma 899-6753 eða með tölvupósti á netfangið arg@remax.is- Baðherbergi eru flísalögð í hólf og gólf, innrétting og spegill.
- Eldhúsinnréttingar eru frá Nobilia frá GKS. Raftæki í eldhúsi eru frá AEG, Bora og Elica (vifta). Í kæliskápaeiningu fylgir innbyggður kæliskápur með frysti. Einnig fylgir innbyggð uppþvottavél. Spanhelluborð í borðplötu. Veggofn og Combiofn fylgja með. Eldhúsvaskur og blöndunartækjum í svörtum lit.
- Aukin lofthæð.
- Lagnaleið fyrir rafmagnshleðslu út á bílastæði.
- Íbúðirnar eru afhentar með flísum á gólfum baðherbergja og þvottahúsa. Önnur gólf eru afhent með 12mm harðparketi úr Parka.
- Lýsing hönnuð af Lúmex, Innbyggð LED-ljós og kubbaljós eru að hluta í hverri íbúð. Hefðbundnir kúplar eru í herbergjum. Útiljós eru á svölum og einnig við aðrar útihurðir. Vatnsvarinn tengill er á svölum.
Nánari lýsing:Anddyri: Rúmgott með góðu skápaplássi.
Herbergi: Fataskápur upp í loft. Parket á gólfi.
Baðherbergi eru tvö talsins: Flísar á gólfi og veggjum, upphengt salerni, sturta með glerskilrúmi, innrétting undir og við handlaug, handklæðaofn.
Þvottahús: Flísar á gólfi, gert ráð fyrir þvottavél og barkalausum þurrkara.
Svefnherbergi I: Fataskápur upp í loft. Parket á gólfi.
Svefnherbergi II: Fataskápur upp í loft. Parket á gólfi.
Svefnherbergi III: Fataskápur upp í loft. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi : Fataherbergi með rúmgóðum skápum og innangengt úr herbergi inná sér baðherbergi.
Eldhús: Glæsilegt innrétting frá Nobilia. Raftæki í eldhúsi eru frá AEG, Bora og Elica (vifta). Í kæliskápaeiningu fylgir innbyggður kæliskápur með frysti. Einnig fylgir innbyggð uppþvottavél. Spanhelluborð í borðplötu. Veggofn og combi fylgja með. Eldhúsvaskur og blöndunartækjum í svörtum lit.
Stofa/borðstofa: Í samliggjandi rými með eldhúsi. Útgengt út á rúmgóðar svalir.
Geymsla: Er í sameign.
Almennt um húsiðHúsið afhendist fullbúið að utan, lóð fullbúin svo og bílastæði. Burðavirki hússins er staðsteypt úr járnbendri steinsteypu. Allir útveggir eru einangraðir að utan og klæddir álklæðningu og Bambus. Botnplata, milliplötur og þakplata eru staðsteyptar. Húsinu fylgja 15 bílastæði, þar af 1 stæði fyrir hreyfihamlaðra. Aðalinngangur hússins er á 2. hæð en einnig er annar inngangur á jarðhæð. Byggingaraðili og seljandi er Gunnar Bjarnason ehf
Umhverfið:Húsið er staðsett í Urriðaholti í Garðabæ sem er einstakt og nýstárlegt hverfi. Umkringt óspilltri náttúru en um leið í nálægð við góðar samgönguæðar og sérlega vel staðsett innan höfuðborgarsvæðisins. Í jaðri hverfisins eru helstu útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins, ósnortin náttúra og einn glæsilegasti golfvöllur landsins. Urriðaholt byggir á hugsjón um að íbúabyggð eigi að hámarka lífsgæði fólksins sem þar býr í sátt við náttúruna í kring og umhverfið allt.
Kaupendur greiða skipulagsgjald sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati íbúðarinnar.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir: Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma 858-7410 eða gj@remax.is
Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma 899-6753 eða arg@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.