Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Domusnova fasteignasala kynna:
Tvö nýleg sumarhús ásamt bílskúr, á tveimur samliggjandi lóðum, Langanes 34-36, 861 Hvolsvöllur.
Báðar eignir eru í eigu sömu fjölskyldu.
Lóðirnar eru leigulóðir frá sveitarfélaginu Rangárþingi eystra og er lóðarleiga innifalin í fasteignagjöldum.
Leigusamningurinn við sveitarfélagið byrjaði 2004 og er til 75 ára.
Sveitarfélagið sér um snjómokstur og tæmingu á rotþró.
Langanes 34 er 115,4 fm sumarhús ásamt 48 fm bílskúr/geymslu, kynnt með gólfhita í gegnum rafhitað vatn í stóru varmaskiptakerfi og mjög stór hitakútur fyrir neysluvatn. Rafmagnsofnar eru í bílskúr. Góð lofthæð er í húsinu, gólfsíðir gluggar í stofu og falleg birta flæðir um allt húsið. Húsið er allt hannað með aðgengi fatlaðra í huga með breiðum og þröskuldalausum hurðum innanhúss.
Langanes 36 er 48,2 fm sumarhús, kynnt með rafmagnsofnum og hitakútur fyrir neysluvatn.
Báðar eignir eru með parket sem gólfefni utan votrýma en þar eru flísar á nr. 34 en dúkur á nr. 36.
Búið er að gróðursetja mikið af trjám á báðum lóðum, nálægt 3000 plöntun síðustu ár og er farið að myndast gott skjól.
Milli eigna er leiksvæði fyrir börn, rólur, trampólín og fleira skemmtilegt með göngustíg milli húsanna.
Geymsluhús sem er óskráð er við innkeyrsluna á stóra húsinu.
Mest allt innbú utan persónulegra muna getur fylgt með óski kaupandi þess.
Útsýni er einstaklega fallegt, fallasýn á Heklu, Tindfjöll, Þríhyrning og Eyjafallajökull sést vel frá húsi nr. 34.
Nánari lýsing Langanes 34 (163,4 fm):
Forstofa - rúmgóð með stórum fataskáp.
Þrjú svefnherbergi - rúmgóð og eitt þeirra með góðum fataskáp.
Gestasnyrting - flísar á gólfi, Fibo Trespo plötur á veggjum, vaskur með innréttingu, snyrting og tengi fyrir þvottavél.
Baðherbergi - mjög rúmgott, flísar á gólfi, Fibo Trespo plötur á veggjum með þröskuldalausri sturtu, salerni og vask með innréttingu.
Eldhús - stór innrétting í U með góðu vinnu- og geymsluplássi, vel búið tækjum, helluborð, gufugleypir, bakaraofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél og einfaldur ísskápur.
Borðstofa/stofa - er opið saman í björtu og stóru rými, hátt til lofts, góflsíðir gluggar, kamína og útgengi á rúmgóða 165 fm verönd sem nær hringinn í kringum húsið og tengir gönguleið yfir að bílskúr.
Bílskúr - er 48 fm að stærð (skráð sem geymsla), kynnt með rafmagnsofnum, góð lofthæð, flísar á gólfi og bílskúrshurð.
Lóðin - er 10.700 fm að stærð og er leigulóð frá Rangárþingi eystra með þjónustu við snjómokstur og tæmingu rotþróar.
Nánari lýsing á Langanesi 36 (42,1 fm):
Forstofa - með fatahengi.
2 Svernherbergi - bæði með góðri lofthæð og björtum glugga.
Baðherbergi - með sturtu, salerni og vask, dúkur á gólfi.
Eldhús/borðstofa/stofa - er í opnu rými með útgengi á verönd þar sem heitur rafmagnspottur er.
Lóðin - er 10.200 fm leigulóð frá Rangárþingi eystra með þjónustu við snjómokstur og tæmingu rotþróar.
Einstaklega flott fjölskyldueining sem getur þjónustað stórar fjölskyldur á margan hátt, aðeins 94 km frá Rauðavatni við Norðlingaholt.
Pöntun á skoðun og nánari upplýsingar fást hjá:
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali
Sími: 899 0720
Netfang: hrannar@domusnova.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.