Fasteignaleitin
Skráð 27. mars 2026

Álfhólsvegur 99

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
100.3 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
77.500.000 kr.
Fermetraverð
772.682 kr./m2
Fasteignamat
67.750.000 kr.
Brunabótamat
49.000.000 kr.
Mynd af Elka Guðmundsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2058266
Landnúmer
113648
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
00
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ekki vitað um vandamál
Raflagnir
Ekki vitað um vandamál
Frárennslislagnir
Dren endurnýjað
Gluggar / Gler
Ekki vitað um vandamál
Þak
Endurnýjað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Sprunguviðgerðir á milli eldhúsa á efri hæðum á suðurhlið, undir stofuglugga á jarðhæð, á vesturhlið og efst á vesturvegg. Verkið verður unnið um leið og veður leyfir og Húsaskjól kemst í framkvæmd. Kostnaður greiðist af seljanda. Seljandi mun einnig skipta um gler í eldhúsi fyrir afhendingu eignar á eigin kostnað. Engin mánaðarleg gjöld eru greidd í hússjóð, heldur er greitt sérstaklega ef til framkvæmda kemur.
Elka lgf. s. 863-8813 og Fasteignasalan TORG kynna fallega og vel skipulagða 4ra herbergja íbúð á jarðhæð með sér inngangi og sér bílastæði á frábærum stað við Álfhólsveg í Kópavogi.  Eignin er skráð 100,3 m² og skiptist í forstofu, eldhús, stofu og borðstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Íbúðin er með sérinngang, gengið vinstra megin við húsið, auk sér bílastæðis.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.

Nánari lýsing;
Forstofa er með góðu skápaplássi og parketflísar á gólfi.
Eldhús er bjart og vel skipulagt með ágætis innréttingu, miklu skápaplássi og góðri tengingu við borðstofu og stofu.
Stofa og borðstofa eru rúmgóðar og bjartar með stórum gluggum og fallegu útsýni.
Svefnherbergin eru þrjú, Tvö þeirra mjög rúmgóð og þriðja herbergið aðeins minna.  Mikið skápapláss í hjónaherbergi eftir endilöngum vegg.
Baðherbergi er snyrtilegt, flísalagt og með baðkari og sturtu.  Endurnýjuð innrétting undir vaski.
Þvottahús er innan íbúðar við hlið eldhúss með glugga, innréttingu og góðu vinnuplássi.

Húsið hefur gengist undir talsverðar endurbætur á síðustu árum. Húsið var múrviðgert að utan. Þak var endurnýjað, þar á meðal þakkantur, þakrennur, þakpappi og járn. Þaksperrur og klæðning voru í góðu ástandi og þurftu ekki endurnýjun.  Skólpagnir fóðraðar og drenað 2025.

Virkilega falleg eign sem er staðsett á eftirsóttum stað í Kópavogi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslun og alla helstu þjónustu. Þá er einnig gott aðgengi að útivistarsvæðum og samgöngum.  

Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
27/05/201625.350.000 kr.26.500.000 kr.100.3 m2264.207 kr.
23/01/200717.270.000 kr.22.700.000 kr.100.3 m2226.321 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (41)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Haukahlíð 1
Bílastæði
Skoða eignina Haukahlíð 1
Haukahlíð 1
102 Reykjavík
54.5 m2
Fjölbýlishús
211
1147 þ.kr./m2
62.500.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 14, íbúð 0405
Hnjúkamói 14, íbúð 0405
815 Þorlákshöfn
99.9 m2
Fjölbýlishús
413
660 þ.kr./m2
65.900.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 14, íbúð 0305
Hnjúkamói 14, íbúð 0305
815 Þorlákshöfn
99.2 m2
Fjölbýlishús
413
654 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 14, íbúð 0205
Hnjúkamói 14, íbúð 0205
815 Þorlákshöfn
97.4 m2
Fjölbýlishús
413
646 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin