Miklaborg kynnir: Einstakt hús á einstökum stað. Húsið er tveggja hæða í lokaðari götu sem aðeins telur sex hús, fjærst umferð. Húsið er allt hið glæsilegasta, hefur fengið gott viðhald og verið endurnýjað að nær öllu leyti. Hér er um einstakt tækifæri að ræða en hús við Háuhlíð koma afar sjaldan á markað. Innbyggður bílskúr og sex bílastæði á lóð. Útipallar á þremur hliðum hússins.
Nánari upplýingar veitir Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is
Komið er inn á flísalagða forstofu, en húsið er allt lagt gegnheilu ljósu parketi, utan forstofu, baðherherbergja og þvottahúss sem eru flísalögð og geymslu og bílskúrs sem eru með máluð gólf. Í forstofu er gestasnyrting og fatahengi, en þaðan er komið inn í rúmgott hol. Úr holi er gengið niður tvö þrep inn á svefnherbergisgang, inn í sjónvarpsherbergi/skrifstofu, svo og stofu og eldhús. Á svefnherbergisgangi er stór þakglugggi sem varpar fallegri birtu ínn í rýmið. Frá ganginuum er farið inn í tvö rúmgóð svefnherbergi með eldri skápum og einnig inn í stórt hjónaherbergi með nýjum skápum, með einkabaðherbergi innaf, sem er með tvöföldum vaski og baðkari. Frá enda svefnherbergisgangs er gengið út í stóran skjólgóðan sólpall með heitum potti, ásamt heitri og kaldri sturtu. Þaðan er einnig hægt að ganga fram fyrir húsið og aftur fyrir húsið niður í bakgarðinn. Stofan, sjónvarpsherbergið og eldhús sambyggt borðstofu eru björt rými með fallegum gluggum. Arinn er í stofu og úr borðstofunni er útsýni á aðra hönd upp í Öskjuhlíð og á hina höndina yfir miðbæ Reykjavíkur, líkt og úr stofunni. Glæsileg eldhúsinnrétting frá Phoggen Phol er með Miele tækjum. Úr holi á efri hæð liggur steyptur stigi til neðri hæðar sem er jarðhæð út í garðinn. Komið er inn í rúmgott sjónvarpshol, þar fyrir innan er tómstundarherbergi og innaf því er svefnherbergi og gestasalerni ásamt útgangi til austurs. Úr sjónvarpsholi liggur einnig svefnherbergisgangur með tveimur svefnherbergjum og sameiginlegu baði með tvöföldum vaski og tvöfaldri sturtu. Þá er opið frá sjónvarpsholi inn á gang sem liggur að geymslu og bílskúr, og loks er gengið frá sjónvarpsholi inn í þvottahús, þaðan sem útgengt er í hjólageymslu og út um hurð til suðurs. Í bílskúr er pláss fyrir stóran bíl og 5-6 bílastæði eru aukalega á lóð hússins. Húsið er skráð með tveimur fastanr. einu fyrir efri hæð og einu fyrir neðri hæð.
Húsið er allt hið glæsilegasta, hefur fengið gott viðhald og verið endurnýjað að nær öllu leyti. Frábær staðsetning í Reykjavík og rétt hjá Hlíðarskóla og Menntaskólanum við Hamrahlíð.
Bókið einkaskoðun hjá:
Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
105 | 368.2 | Tilboð | ||
105 | 368 | Tilboð | ||
105 | 368 | Tilboð | ||
108 | 351 | 227 | ||
108 | 350 | 227 |