Falleg og vel skipulögð íbúð í litlu fjölbýli á eftirsóttum stað á Völlunum. Eignin er samtals 122,1 m², þar af er sérgeymsla í kjallara 11,2 m².
Íbúðin er skráð 4ra herbergja, en við byggingu hennar var eitt herbergjanna ekki sett upp og nýtur stofan því aukins rýmis. Auðvelt er að bæta herberginu við aftur og skapa þannig þriðja svefnherbergið. Íbúðin er á efstu hæð, önnur hæð frá götu. Nánari lýsing: Komið er inn í forstofu með parketi á gólfi og skápum. Svefnherbergin eru tvö, bæði með parketi á gólfi og skápum.
Baðherbergið er flísalagt bæði á gólfi og veggjum og þar er upphengt salerni, baðkar, handklæðaofn og innrétting. Sér þvottahús er innan íbúðar með flísum á gólfi.
Stofa og borðstofa er rúmgott rými með parketi á gólfi. Þaðan er útgengt á svalir sem snúa í suðvestur.
Eldhúsið er opið að stofunni og skapar það fallegt og þægilegt alrými. Þar er parket á gólfi, helluborð, vifta, ofn í vinnuhæð og flísar á milli efri og neðri skápa.
Í kjallara fylgir eigninni sérgeymsla. Einnig er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í húsinu.
Góð staðsetning í rólegri götu á völlunum þar sem stutt er í alla helstu þjónustu s.s grunn- og leikskóla, fjölbreytt úrval verslana, Íþróttamannvirki og sundlaug eru allt í þægilægri göngufjarlægð.
Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Svanur Sigfússon löggiltur fasteignasali í s. 862-3377 / eirikur@as.is og Aron Freyr Eiríksson löggiltur fasteignasali í síma 772-7376 / aron@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is