Falleg og björt 3ja herbergja endaíbúð við Nýbýlaveg 72, Kópavogi.
Íbúðin er á annarri hæð í litlu fjölbýli, aðeins 5 íbúðir í húsinu.Íbúðin er skráð 85,8 fermetrar en er í dag um 9 fermetrum stærri því búið er að byggja yfir og opna inn hluta af svölunum.Raunveruleg stærð er því um 94 fm.Frábær staðsetning, gróið hverfi, miðsvæðis í Kópavogi.
Nánari upplýsingar veitir:
Hörður Sverrisson Lgf. í síma nr 899-5209 eða hordur@palssonfasteignasala.isNánari lýsingInngangur/forstofa er með skápum með speglahurðum og flísum á gólfi.
Eldhús með viðarinnréttingu, stórum glugga og flísum á gólfi.
Stofa er björt með gluggum í tvær áttir og parketi á gólfi.
Yfirbyggðar svalir að hluta sem búið er að sameina við stofu og eru þar flísar á gólfi með hita.
Útgangur á sólríkar og skjólsælar suðursvalir sem vísa út á opið gróðursælt svæði.
Herbergi I er með parketi og er innangengt
í þvottahús/fataherbergi með glugga og flísum á gólfi. Einnig er hægt að ganga þar inn frá holi.
Herbergi II er með skáp og parketi á gólfi.
Sérgeymsla, 5,6 fermetrar og sameiginleg vagna- og hjólageymsla á jarðhæð hússins. Íbúðin er einstaklega vel staðsett miðsvæðis í Kópavogi, gróið hverfi, stutt í alla þjónustu, skóla og leikskóla.
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.