Fasteignaleitin
Skráð 12. júní 2026

Merkjadalur, lóðir 1-11

Jörð/LóðAusturland/Egilsstaðir-701
Verð
6.100.000 kr.
Fasteignamat
2.580.000 kr.
Mynd af Elín Káradóttir
Elín Káradóttir
Fasteignanúmer
2539186
Landnúmer
239732
Húsgerð
Jörð/Lóð
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Eignarlóð
BYR fasteignasala kynnir í einkasölu Merkjadalur, 10 eignarlóðir í landi Hafrafells 1. 
Lóðirnar eru frá  4.516 m² til 8.161 m² að stærð, sjá nánar hér fyrir neðan lista yfir lausar lóðir. 
Svæðið er skipulagt sem frístundabyggð, sem þýðir að það hús sem er reist er frístundahús og því ekki hægt að vera með lögheimili á svæðinu. 
Lóðirnar eru ýmist tún, mói og á sumum lóðum er klettur er stórgrýti.

Merkjadalur 1, F253-9186, stærð 5.198 m², verð kr. 10.000.000 kr, útsýni yfir Urriðavatn
Merkjadalur 2, F253-9187, stærð 8.118 m², verð kr. 12.000.000 kr, útsýni yfir Urriðavatn
Merkjadalur 3, F253-9195, stærð 8.161 m², verð kr. 12.000.000 kr, útsýni yfir Urriðavatn

Merkjadalur 4, F253-9188, stærð 5.533 m², verð kr. 8.000.000 kr
Merkjadalur 5, F253-9189, stærð 5.638 m², verð kr. 6.200.000 kr
Merkjadalur 6, F253-9190, stærð 5.364 m², verð kr. 7.700.000 kr
Merkjadalur 7, F253-9191, stærð 4.676 m², verð kr. 6.100.000 kr
Merkjadalur 8, F253-9192, stærð 5.646 m², verð kr. 6.800.000 kr
Merkjadalur 9, F253-9193, stærð 4.516 m², verð kr. 6.500.000 kr
Merkjadalur 11, F253-9194, stærð 4.984 m², verð kr. 7.200.000 kr

Samkvæmt deiliskipulagi svæðisins má reisa frístundahús allt að 160 m² að stærð.
Innan ytri byggingarreits er jafnframt heimilt að reisa allt að 100 m² viðbótarhúsnæði, svo sem gestahús, geymslu, bílgeymslu eða vinnustofu.
Hámarksbyggingarmagn á lóð er því samtals 260 m². Heimilt er að byggja smáhýsi í samræmi við ákvæði byggingarreglugerðar.
Á lóðum 1, 2 og 3 er heimilt að vera með hesthús, snyrtilegt gerði og taðþró sem nánar er útfært í deiliskipulagi. 

Útlit og frágangur mannvirkja
Hús skulu vera lágreist. Veggir skulu vera í jarðlitum eða viðarlitum. Þök skulu vera með mæni og þakhalla á bilinu 10–25° og klædd torfi eða plötuklæðningu í dökkgrænum, dökkgráum eða brúnum lit.
Tengibyggingar undir 10 m² mega vera með flötu þaki klæddu tjörupappa.
Mænishæð skal ekki vera meiri en 6,5 m frá gólfkóta aðalhæðar og gólfkóti skal vera innan við 0,5 m frá óhreyfðu landi.
Meginlínur bygginga skulu vera samsíða stefnu sem sýnd er á skipulagsuppdrætti eða þvert á hana. Við hönnun skal taka mið af landslagi og staðháttum.
Gert er ráð fyrir 2–3 bílastæðum innan hverrar lóðar.

Kalt vatn og rafmagn er komið að lóðarmörkum. HEF veitur eru með hitaveitu á svæðinu, hver lóðarhafi semur við HEF veitur um tengingu hitaveitu. Lóðarhafar bera kostnað af lögnum innan eigin lóðar.  
Hver lóð skal jafnframt hafa aðstöðu til flokkunar sorps samkvæmt kröfum sveitarfélags.
Fráveita; tveir afmarkaðir reitir eru fyrir sameiginlega fráveitu, en þó er heimilt að hreinsa frárennsli innan lóðar, sjá nánar í greinargerð um svæðið undir kaflanum ,,Veitur og sorp". Skjalið má nálgast hjá Byr fasteignasölu, byr@byrfasteignasala.is. 

Kvaðir og takmarkanir
Lóðarhafi ber ábyrgð á framkvæmdum og frágangi innan sinnar lóðar í samræmi við samþykktar teikningar.
Flutningur lúpínu inn á svæðið er bannaður og forðast ber hávaxnar og ágengar trjátegundir. Svæði utan lóða skal almennt haldið óbreyttu og ekki nýtt nema samkvæmt skilmálum deiliskipulags.
Skipulagssvæðið er innan náttúruminjaskrár (svæði 646 Út-Fell) og gilda þar sérstök ákvæði um umgengni og framkvæmdir. Skráðar fornminjar eru innan skipulagssvæðisins en utan byggingarreita. Komi áður óþekktar minjar í ljós við framkvæmdir skal stöðva vinnu og tilkynna fundinn til Minjastofnunar Íslands.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (17)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eystri-Hellur
Skoða eignina Eystri-Hellur
Eystri-hellur
803 Selfoss
557,159.6 m2
Jörð/Lóð
24
0 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Bjarkarás 18
Skoða eignina Bjarkarás 18
Bjarkarás 18
805 Selfoss
5,313 m2
Jörð/Lóð
1 þ.kr./m2
6.000.000 kr.
Skoða eignina Berustaðir 50 hektarar
Berustaðir 50 hektarar
851 Hella
1,998,000 m2
Jörð/Lóð
0 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Skoða eignina Kjarrás 5
Skoða eignina Kjarrás 5
Kjarrás 5
301 Akranes
11.5 m2
Jörð/Lóð
1
1383 þ.kr./m2
15.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin