** Opið hús miðvikudaginn 16. október frá kl. 17:00 til 17:30 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 ** Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: 262,4 m2 sérhæð með innbyggðum bílskúr og auka íbúð á neðri hæð við Súluhöfða 25 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 262,4 m2 þar af íbúðarhæðin 162,2 m2, bílskúr 37,5 m2 og íbúð á neðri hæð 62,2 m2. En auk þess er önnur íbúð í kjallara í eigu annars aðila sem ekki fylgir í kaupunum.
Hæðin skiptist í forstofu, hol, fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, geymslu/þvottahús, eldhús, sjónvarpshol, stofu, borðstofu og bílskúr. Íbúðin á neðri hæð skiptist í opið rými með eldhúsi og rúmgóðri stofu, forstofu, baðherbergi, svefnherbergi og geymslu. Aukaíbúðin sem fylgir eigninni er í útleigu í dag og veitir góðar leigutekjur.
Fyrir framan húsið er steypt bílaplan og stór timburverönd með skjólgirðingu. Stórar svalir með fallegu útsýni. Þetta er skemmtileg eign í góðu hverfi á vinsælum stað í Mosfellsbæ, stutt er í grunnskóla, leikskóla, sundlaug og líkamsrækt. Fallegar gönguleiðir og golfvöllur í næsta nágrenni.Smelltu hér til að fá söluyfirlit sentNánari lýsing:Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Eldhús er mjög rúmgott með flísum á gólfi. Í eldhúsi er innrétting með miklu skápaplássi. Í innréttingu er blástursofn, innbyggður örbylgjuofn, helluborð og háfur. Gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp og uppþvottavél í innréttingu. Úr eldhúsi er gengið út á stórar L-laga svalir í suðvesturátt með fallegu útsýni.
Stofa, sjónvarpshol og borðstofa eru í opnu rúmgóðu rými með parketi á gólfi. Mikil lofthæð sem gerir rýmið bjart og skemmtilegt. Úr stofunni er útgengt út á svalirnar.
Baðherbergi nr. 1 er flísalagt með innréttingu, skáp, salerni og hornbaðkari.
Baðherbergi nr. 2 er inn af forstofu með innréttingu, salerni og sturtuklefa.
Þvottahús/geymsla er með borðplötu fyrir þvottavél og þurkara í vinnuhæð og flísum á gólfi. Úr þvottahúsi er innangengt inn í bílakúr.
Svefnherbergi nr. 1 (hjónaherbergi) er með fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 2 er inn af forstofu með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 3 er með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr 4 er mað fataskáp og parketi á gólfi
Bílskúr er rúmgóður með flísum ó gólfi og geymslulofti. Innangengt er i bílskúrinn úr íbúðarhlutnaum í gegnum þvottahúsið.
Íbúð á neðri hæð:Forstofa með flísum á gólfi
Stofa og eldhús eru í mjög rúmgóðu rými með parketi á gólfi. hvít eldhúsinnrétting með vaski, uppþvottavél og eldavél.
Baðherbergi er flísalagt með lítilli innréttingu, salerni og sturtuklefa.
Herbergi með parketi á gólfi og opnarlegum glugga.
Þvottahús/geymsla er með flísum á gólfi. Tengi fyrir þvottavél.
Verð kr. 148.900.000,-