Fasteignaleitin
Skráð 5. ágúst 2026

SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf

FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
141 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
69.600.000 kr.
Fermetraverð
493.617 kr./m2
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
http://www.spanareignir.isEignalisti
Garður
Svalir
Pallur
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
100040826
Landnúmer
0
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Stór verönd
Upphitun
Kæling / Hiti
Inngangur
Sameiginlegur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*EINSTAKAR LÚXUSÍBÚÐIR Í NÝJU HVERFI Á LAS COLINAS GOLF*
*STÓRAR VERANDIR – STÓRKOSTLEGT ÚTSÝNI – EINKABÍLASTÆÐI – GLÆSILEGUR SUNDLAUGARGARÐUR – EINN BESTI GOLFVÖLLUR EVRÓPU*
Hér gefst einstakt tækifæri til að eignast glæsilega lúxusíbúð í nýju og afar vönduðu íbúðaverkefni á hinum margverðlaunaða Las Colinas Golfvelli.
Þessar íbúðir eru hannaðar fyrir þá sem vilja aðeins það besta. Hér sameinast nútímalegur arkitektúr, einstakt náttúruumhverfi og lífsstíll sem fáir staðir við Miðjarðarhafið geta boðið upp á. Glæsilegar íbúðir með stórum veröndum, fallegu útsýni yfir golfvöllinn og til sjávar. Vandaður frágangur. Notalegt heimili þar sem gæði, þægindi og kyrrð eru í fyrirrúmi.
Las Colinas hefur um árabil verið valið eitt besta golfsvæði Evrópu og margverðlaunað sem einn besti golfvöllur Spánar. Svæðið er aðeins um 50 mínútna akstur frá Alicante-flugvelli og um 10 mínútur frá fallegum sandströndum Campoamor.
Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. adalheidur@spanareignir.is. 00354-893 2495.
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali. berta@spanareignir.is. 0034 615 112 869.

Lýsing:

Íbúðirnar eru í Lima, nýju og glæsilegt íbúðaverkefni á einum eftirsóttasta stað Las Colinas. Hönnun bygginganna einkennist af hreinum línum, stórum gluggaflötum og einstaklega fallegri samþættingu við náttúruna sem umlykur svæðið.
Í boði eru rúmgóðar íbúðir með tveimur eða þremur svefnherbergjum og tveimur eða þremur baðherbergjum, auk gestasnyrtingar í stærri íbúðum. Björt stofa og borðstofa eru í opnu rými ásamt glæsilegu hönnunareldhúsi þar sem stórir gluggar frá gólfi til lofts tengja saman innra og ytra rými með náttúrulegum hætti.
Stórar verandir verða eðlileg framlenging á stofunni og bjóða upp á frábæra aðstöðu til að njóta sólar, kyrrðar og stórbrotins útsýnis allt árið um kring.
Jarðhæðirnar eru með rúmgóðum sérveröndum og einkagörðum en efri hæðir njóta víðáttumikils útsýnis yfir golfvöllinn, skóginn og hið fallega landslag Las Colinas. Penthouse-íbúðirnar bjóða auk þess upp á stórar einkaþaksvalir þar sem hægt er að njóta spænska loftslagsins allan ársins hring. 
Fallegur sameiginlegur sundlaugargarður og góð sólbaðsaðstaða skapar fágað andrúmsloft þar sem lögð er áhersla á næði, öryggi og lífsgæði.

Las Colinas – einstakur lífsstíll
Las Colinas Golf er miklu meira en golfvöllur.
Hér býr fólk sem vill njóta kyrrðar, náttúru og fyrsta flokks þjónustu í öruggu og glæsilegu umhverfi.

Íbúar hafa aðgang að:
*margverðlaunuðum 18 holu golfvelli
*glæsilegu klúbbhúsi
*úrvals veitingastöðum
*líkamsrækt og heilsurækt
*tennis- og padelvöllum
*fallegum göngu- og hjólaleiðum
*einkastrandklúbbi við Dehesa de Campoamor
*24 tíma öryggisgæslu allt árið.


Las Colinas er einstakt náttúrusvæði þar sem aðeins lítill hluti landsins er byggður. Þessi nálgun skapar einstakt jafnvægi milli náttúru og byggðar sem gerir svæðið að einu eftirsóttasta íbúðasvæði Costa Blanca.
Loftkæling og hitun fylgir.
Sér bílastæði í lokuðum bílakjallara og sér geymsla fylgja öllum íbúðum.
Hágæða innréttingar, stórar verandir og glæsilegur sundlaugargarður gerir þetta að einu glæsilegasta nýbyggingarverkefni Las Colinas.
Margir af bestu golfvöllum Costa Blanca eru í næsta nágrenni auk Las Colinas, svo sem Campoamor, Las Ramblas, Villamartín og La Finca.
Aðeins um 10 mínútna akstur er niður á ströndina í Dehesa de Campoamor og um svipaðan akstur í verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Þetta er eign fyrir þá sem vilja njóta lífsins, spila golf, njóta stórbrotinnar náttúru og eiga eftirminnilegar stundir með fjölskyldu og vinum.

VERРmiðað við gengi 1 Evra = 145 ISK.
2 svefnherbergi + 2 baðherbergi
frá 480.000 Evrum (ISK 69.600.000) + kostn. við kaupin.

3 svefnherbergi + 2–3 baðherbergi
frá 625.000 Evrum (ISK 90.600.000) + kostn. við kaupin.
Stærðir frá 103 fm upp í 150 fm, auk stórra veranda eða þaksvala eftir gerð íbúðar.

Hægt er að fá íbúðirnar afhentar fullbúnar húsgögnum gegn aukagjaldi.

SKOÐUNARFERÐIR
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra ef af viðskiptum verður.

Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Það tryggir kaupendum þekkingu, öryggi og yfir tveggja áratuga reynslu af fasteignakaupum á Costa Blanca.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin
10% IVA (spænskur virðisaukaskattur) af kaupverði eignarinnar.
Auk þess þarf að gera ráð fyrir um 3% vegna stimpilgjalda, lögbókanda, skráningar, þinglýsingar og annars kostnaðar.
Heildarkostnaður við kaupin er því yfirleitt um 13% af kaupverði.

Hér er ekki aðeins um að ræða fallegt heimili heldur fjárfestingu í lífsstíl. Hér sameinast gæði, öryggi og náttúrufegurð á einum eftirsóttasta stað Costa Blanca. Fyrir þá sem vilja aðeins það besta eru þessar íbúðir sannarlega einstakt tækifæri.

Eiginleikar: Las Colinas Golf, Costa Blanca, Lúxusíbúðir, Nýbygging, Golf, Air condition, Sameiginlegur sundlaugargarður, Bílastæði, Geymsla, 24 tíma öryggisgæsla, Strandklúbbur, Stórar verandir, Einstakt náttúruumhverfi, Lokað svæði,
Svæði: Las Colinas, Orihuela Costa,
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
100040826
Fasteignanúmer
100040826

Myndir (17)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Suðurgata 93
Efsta hæð
Skoða eignina Suðurgata 93
Suðurgata 93
300 Akranes
153.9 m2
Fjölbýlishús
523
584 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Ásabraut 10
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Ásabraut 10
Ásabraut 10
300 Akranes
151.4 m2
Raðhús
312
627 þ.kr./m2
95.000.000 kr.
Skoða eignina Háteigur 4
Efsta hæð
Skoða eignina Háteigur 4
Háteigur 4
300 Akranes
136.6 m2
Hæð
513
365 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Skoða eignina Ögurás 14
Heitur pottur
Opið hús:09. ágúst kl 15:00-15:30
Skoða eignina Ögurás 14
Ögurás 14
210 Garðabær
140.8 m2
Raðhús
524
994 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin