Borgarhólsbraut, Vaðnesi – 5.500 fm eignarland, heitt vatn og miklar endurbætur.
Fasteignaland kynnir: Vel viðhaldið og mikið endurnýjað sumarhús staðsett á fallegri, kjarrivaxinni skóglóð á Vaðnesi. Um er að ræða lokað svæði með rafmagnshliði sem tryggir næði og ró. Upphaflegt hús var byggt árið 1972 en stækkað árið 2000. Á síðustu árum hefur húsið fengið mikið og vandað viðhald þar sem nútíma þægindi mæta notalegri sumarhúsastemningu.
Nánari lýsing: Hjarta hússins er bjart og opið alrými þar sem eldhús, stofa og borðstofa flæða saman. Eldhúsið var stækkað verulega árið 2021. Þar er nú stór eldunareyja, mikil skápainnrétting með granít borðplötum og vönduð tæki, þ.m.t. vínkælir, spanhelluborð og innbyggður ísskápur. Stofan er opin og rúmgóð með fallegri frístandandi kamínu (sett upp 2022). Svefnherbergin eru þrjú, þar af var eitt þeirra áður tvö minni herbergi. Hjónasvítan er með nýlegri rennihurð þaðan sem hægt verður að ganga út á viðarverönd sem vinna er hafin við. Sér baðherbergi þar sem er tengi fyrir þvottavél. Baðherbergi og þvottaaðstaða: Stóra baðherbergi hússins var endurnýjað að fullu árið 2025 með nýjum tækjum og innréttingum og í dag er innangengt í það og útgengt að heitum potti.
Lóð og ytra byrði: Húsið stendur á stórri 5.500 fm eignarlóð sem veitir mikið skjól með vöxnum greni-, furu- og birkitrjám sum þeirra yfir 50 ára gömul. Stór og góð viðarverönd er við húsið með heitum potti sem hægt er að nýta allan ársins hring. Búið er að steypa niður hólka til undirbúnings fyrir stækkun á palli í suðaustur, sem mun nýta kvöldsólina mun betur. Á lóðinni er einnig um 10 fm frístandandi áhaldageymsla (bjálkahús) sem er ekki í skráðum fermetrum.
Helstu framkvæmdir og endurbætur síðustu ára:
* 2025: Stóra baðherbergið endurnýjað að fullu (ný tæki og innréttingar). Hólkar settir niður fyrir stækkun á palli.
* 2024: Ný heimreið lögð alveg að húsi (áður var 90 m ganga að húsinu frá bílastæði).
* 2023: Ný einangrun sett í gólf eldri hluta og sperrur styrktar. Allt gólfefni í húsinu endurnýjað (hlýlegt hnotu harðparket). Þakjárn á eldri hluta endurnýjað.
* 2022: Gluggar í stofu endurnýjaðir. Rafmagnstafla endurnýjuð. Kamína sett upp í stofu. Föst skápainnrétting sett upp í stofu.
* 2021: Eldhús stækkað og endurnýjað, granít á borðum. Ofnalagnir í eldri hluta endurnýjaðar (ofnar einnig endurnýjaðir að hluta).
Árgjald í félag sumarhúsaeiganda á svæðinu er um kr. 30.000.á ári.
Hér er um að ræða virkilega vandaða eign á eftirsóttum stað sem heillar á öllum árstíðum. Hús sem þetta koma afar sjaldan í sölu.
Upplýsingar gefa:
Jón Smári Einarsson, löggiltur fasteignasali. s. 860-6400, netfang: jonsmari@fasteignaland.is
Heimir H. Eðvarðsson, löggiltur fasteignasali. s. 893-1485, netfang: heimir@fasteignaland.is
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignaland fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup á íbúðarhúsnæði m.v. amk. 50% hlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900 .
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.