STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Fallega 154,9 fm efri sérhæð í tvíbýli ásamt bílskúr. Húsið stendur ekki alveg við Langholtsveginn heldur keyrt inn lítinn botnlanga. Sérstæður bílskúr. Járn og pappi var endurnýjað á þaki sumarið 2008.
Íbúðin er 124,1 fm (merkt 01-0201) og bílskúr er 30,8 fm (merkt 02-0101) og samtals er eignin skráð 154,9 fm skv skráningu Þjóðskrá Íslands.
Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.is.Forstofa er með teppi á gólfi og á stiga.
Hol er með fatahengi.
Stofa er með parketi á gólfi og þaðan er útgengt á suðursvalir.
Eldhús flísar á gólfi, viðarinnrétting og flísar á milli efri og neðri skápa.
Svefnherbergin eru þrjú og eru með parketi á gólfum, úr einu herbergjanna er útgengt á suðursvalir.
Fataherbergi með stein á gólfi og góðum skápum og hillum.
Baðherbergi er með flísum á gólfi, wc, vaskur, baðkar með sturtu, skápur og gluggi með opnanlegt fag.
Þvottahús er með flísum á gólfi, vinnuborð, vaskur og skápur.
Bílskúr með steyptu gólfi.