Fallegt og mikið endurnýjað raðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr á fjölskylduvænum og skjólsælum stað í Norðurbæ Hafnarfjarðar.
** 3 rúmgóð svefnherbergi og auðvelt að bæta við 1-2 svefnherbergjum til viðbótar
** Mikið endurnýjuð á árunum 2019-2026
** Frábær staðsetning
** Upphitað bílaplan með plássi fyrir marga bíla
Nánari upplýsingar veita:Hrafnkell Pálmarsson Lgf / MBA. í síma nr 660-1976 eða hrafnkell@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurBirt stærð skv. HMS er 171m2, þar af bílskúr 35m2
Eignin skiptist í forstofu/anddyri, 3 svefnherbergi, stofu/borðstofu, baðherbergi, gestasalerni, þvottahús og bílskúr.
Nánari lýsing
Forstofa/anddyri er rúmgóð með fataskáp. Flísar á gólfi.
Svefnherbergi I er mjög rúmgott (var áður tvö herbergi og auðvelt að breyta í tvö). Parket á gólfi.
Gestasalerni er með innréttingu, upphengdu salerni og opnanlegum glugga. Flísar á gólfi.
Eldhús er með ljósri innréttingu, bakaraofni, helluborði, viftu, ísskáp og uppþvottavél. Rúmgóður borðkrókur. Parket á gólfi.
Þvottahús er inn af eldhúsi með innréttingu og útgengi út í framgarð. Flísar á gólfi.
Stofa/borðstofa er rúmgóð og hátt til lofts í stofu og útgengi út í garð. Parket á gólfi.
Svefnherbergi II er rúmgott með fataskáp. Parket á gólfi.
Baðherbergi var endurnýjað 2019 á afar glæsilegan hátt walk-in sturtu og baðkari, niðurfelldri lýsing, handklæðaofni og vönduðum tækjum, opnanlegur gluggi. Flísalagt í hólf og gólf með vönduðum flísum.
Svefnherbergi III er rúmgott með góðum fataskápum. Parket á gólfi
Bílskúr innangengt frá íbúð með heitu og köldu vatni, rafdrifinn opnari.
Garðurinn fyrir framan hús hefur verið tekinn í gegn á smekklegan hátt og er pallur með skjólveggjum afar skjólgóður. Þegar plan var endurnýjað var skipt út jarðvegi og settar hitalagnir í planið sem rúmar marga bíla.
Auðvelt að bæta við allt að tveimur herbergjum með því að skipta forstofuherbergi aftur upp í tvö ásamt því að gera herbergi úr geymslunni sem er með glugga út í garð.
Ath. Eigninni hefur verið breytt frá upprunalegum teikningum
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.