Stuðlaberg Fasteignasala kynnir í einkasölu 4ra herbergja 154,6fm endaraðhús með innbyggðum bílskúr við Þrastartjörn í Reykjanesbæ. Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.
Forstofa er flísalögð og þar er góður skápur.
Stofa er parketlögð og hurð er út á afgirta verönd frá stofu.
Í eldhúsi er parket á gólfi, góð hvít innrétting með flísar á milli skápa, helluborð, ofn og vifta.
Þvottahús er inn af gangi og þar eru flísar á gólfi og innrétting með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Á baðherbergi eru flísar bæði á gólfi og á veggjum, þar er góð innrétting, rúmgóð sturtuaðstaða stúkuð af með gleri(walk-in shower), upphengt salerni og handklæðaofn.
Svefnherbergin eru þrjú og eru þau öll parketlögð og skápar eru í öllum herbergjum.
Bílskúr er fullbúinn, háaloft er yfir hluta skúrsins og innangengt er í bílskúr í gegnum þvottahús.
*Innkeyrsla hellulögð og með hitalögn.
*Innangengt er í bílskúr í gegnum þvottahús.
*Eldhús og stofa liggja saman í opnu rými.
*Stór afgirt verönd er á baklóð með heitum potti.
*Útgengt er út á verönd bæði frá hjónaherbergi og stofu.
*Afgirt verönd er einnig við framhlið hússins og lóðin er að mestu grasilögð.
*Flott staðsetning innst í botngötu.
Nánari upplýsingar um eignina veitir:
Halldór Magnússon lfs
s: 420-4000 / 863-4495
dori@studlaberg.is