Valhöll fasteignasala kynnir: Heillandi 5-6 herbergja einbýlishús í hjarta Hafnarfjarðar.
Um er að ræða einstaklega fallegt einbýlishús á tveimur hæðum/þremur pöllum við miðbæ Hafnarfjarðar.
Húsið er skráð 132,2 fm og fyrst byggt árið 1926 en hefur verið mikið endurbætt og endurskipulagt í gegnum tíðina. Viðbygging með eldhúsi borðstofu og baðherberg var reist árið 1997. Nánari upplýsingar veitir Snorri Snorrason lgf, s 895-2115 eða snorri@valholl.isSkipulag eignar.Jarðhæð„Á jarðhæð hússins, sem byggt var árið 1925, tekur á móti fólki hlýlegt andrúmsloft þar sem klassískur stíll og sjarmi gömlu byggingarinnar blandast saman við smekklega innréttað rými. Komið er inn í
"forstofu" með góðu aðgengi. Þaðan er gengið inn í fallegt "
hol" sem tengist "
borðstofu" og rúmgóðri "
stofu" í opnu flæði. Til hægri við forstofuna er hentug "
geymsla" en þar er einnig hægt að hafa þvottahús. Til vinstri er rúmgott
"herbergi I" með opnum skáp. Hæðin einkennist af hlýjum og upprunalegum stíl með viðarpanel í lofti og vegglistum, góðri lofthæð notalegri stemningu sem fangar karakter hússins.“
Miðpallur.Á miðpallinum sem er viðbygging og byggð árið 1997 er bjart og rúmgott "
eldhús" með fallegri viðarinnréttingu. Rýmið er opið og loftið hvítur planill sem gefur bjarta og notalega tilfinningu. Þar er einnig borðkrókur með góðum glugga sem snýr út í garð og hleypir inn birtu.Skápur í borðkrók getur fylgt með. "
Baðherbergi I"(nú þvottaherbergi), er með sturtuklefa, skolvask, skáp og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Salernið er ekki til staðar en skv teikningu eru lagt fyrir því og því ætti að vera auðvelt að tengja það. Úr eldhúsinu er gengið beint út á skjólgóða verönd í bakgarði, þar sem hægt er að njóta útiveru í friðsælu umhverfi. Baklóðin sem er með trjágróðri og hellisskúta er á 2 stöllum og liggur stigi upp á efri hluta lóðarinnar.
Efri hæð:Á efri hæð hússins eru
þrjú rúmgóð "svefnherbergi" sem geta öll rúmað tvíbreið rúm. "
Baðherbergið" er með innréttingu,hvítum antikskáp hrenilætistækjum í króm lit og eldra baðkari (antik) á fæti sem setur skemmtilegan svip á rýmið. Góðir þakkvistir eru á húsinu og nýtist því efri hæðin afar vel, þrátt fyrir að vera rishæð.
Geymsluloft er yfir húsinu og er lúga með stiga í lofti barnaherbergis.
Gólfin í eldri hluta hússins er viðargólf en flísar eru á gólfum viðbyggingar. Rofar og tenglar eru nýir en eru að hluta til í eldra útliti sem undirstrikar karakter hússins.
Lóð og umhverfi:Húsið stendur á fallegri hraunlóð í miðbæ Hafnarfjarðar þar sem stutt er í alla helstu þjónustu: verslanir kaffihús, bókasafn, skóla og leikskóla. Lóðin er einstaklega skjólgóð og nýtur mikils einkennis af náttúrulegu hrauninu sem umlykur garðinn og gefur svæðinu sérstakt yfirbragð. Á baklóðinni er rúmgóður sólpallur með góðu rými fyrir útiborð, setsvæði og grill. Gróður og blómaker skapa notalega umgjörð en um leið er haldið í náttúrulegt yfirbragð hraunlóðarinnar. Sólpallurinn veitir góða tengingu við þetta einstaka útisvæði sem býður upp á bæði hvíld og samveru.
Endurbætur og viðhaldSkipt var um járn á þaki árið 2017 og 2 loftunartúður settar á 2021
Húsið var múrað og málað að utan árið 2017
Sprunguviðgerðir og málað að utan árið 2025
Samantekt:Þetta er einstakt tækifæri til að eignast heillandi einbýlishús í gömlum og sjarmerandi stíl í hjarta Hafnarfjarðar. Húsið hefur fengið mikið viðhald, er í góðu ásigkomulagi og bíður nýrra eigenda sem kunna að meta persónulegan karakter og sögulegan blæ.